

Alþingi hefur ákveðið að veita 36 einstaklingum íslenskan ríkisborgararétt samkvæmt tillögu frá allsherjar- og menntamálanefnd. Frumvarp þess efnis var samþykkt á Alþingi nú fyrir stundu. Alls er um að ræða 28 fullorðna einstaklinga og átta börn þeirra.
Í hópi þeirra sem hlutu náð fyrir augum nefndarinnar er rússneska tónlistarkonan og aðgerðarsinninn, Diana Burkot, sem er ein af meðlimum hljómsveitarinnar Pussy Riot sem er þyrnir í augum þarlendra yfirvalda. Díana hefur verið búsett á Íslandi undanfarin ár og stundað hér list sína auk þess að láta sig málefni Rússlands varða.
Áður hafa kollegar hennar úr sveitinni Mariia Alekhina, Liudmila „Lucy“ Shtein og Nadezhdu Tolokonnikov hlotið íslenskan ríkisborgarétt.

Díana hefur verið búsett á Íslandi undanfarin ár og stundað hér list sína auk þess að láta sig málefni Rússlands varða. Til að mynda vakti grein sem hún skrifaði á Vísi, ásamt áðurnefndri Nadezhdu, athygli á síðasta ári en greinin bar yfirskriftina „Íslenskur Pútínismi“, þar sem íslensk stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd.
Hljómsveitin Pussy Riot var stofnuð árið 2011 og hefur vakið heimsathygli fyrir pólitískt andóf, sérstaklega í garð Vladímírs Pútín Rússlandsforseta og þarlendra stjórnvalda. Meðlimir sveitarinnar hafa hlotið ófáa fangelsisdóma fyrir andóf sitt og þar á meðal Díana sem meðal annars hlaut átta ára fangelsisdóm fyrir að vanvirða rússneska herinn í september 2025.
Þetta eru þeir 36 einstaklingar sem hlutu ríkisborgararétt í dag:
Ríkisborgararétt skulu öðlast:
1. Adam Roy Gordon, f. 1984 í Bandaríkjunum.
2. Adam Farman Jabar, f. 2024 á Íslandi.
3. Adrian Jesus Melo Fria, f. 2011 í Venesúela.
4. Adrimir Selene Melo Fria, f. 1984 í Venesúela.
5. Amira Victoria Mejias Colina, f. 2021 í Síle.
6. Avonleigh Ann Crumpton, f. 2005 í Bandaríkjunum.
7. Barry Lee Lennon, f. 2012 í Þýskalandi.
8. Carol Carter Green, f. 1957 í Bandaríkjunum.
9. Christian Erik Engelstoft Asgeirsson, f. 2001 í Danmörku.
10. Diana Burkot, f. 1985 í Rússlandi.
11. Eden Mayim Gittler, f. 2008 í Bandaríkjunum.
12. Eliso Kalandia, f. 1984 í Georgíu.
13. Elizabeth Wendelken, f. 1952 í Bandaríkjunum.
14. Eric Oriakhi, f. 1984 í Nígeríu.
15. Farman Jabar Karim Karim, f. 1986 í Írak.
16. Gloria Nelima Nyongesa, f. 1993 í Kenía.
17. Joanne Caren Blank, f. 1974 í Bandaríkjunum.
18. Juan Alejandro Rivas Veloz, f. 2018 í Venesúela.
19. Julie Anne Barbo, f. 1967 í Bandaríkjunum.
20. Kaban Othaman Saeed Saeed, f. 1997 í Írak.
21. Karólína Elísabetardóttir, f. 1970 í Þýskalandi.
22. Kristof Niclas M. Weitemeier, f. 1976 í Þýskalandi.
23. Lamitta Alamatouri Nasr, f. 2015 í Sýrlandi.
24. Maellys Nyongesa, f. 2017 í Sviss.
25. Margaret Elizabeth Kjaernested, f. 1969 í Bandaríkjunum.
26. Marianne Victoria Cowden, f. 1957 á Íslandi.
27. Martin E. Wendelken, f. 1953 í Bandaríkjunum.
28. Mateo Alejandro Mejias Colina, f. 2019 í Síle.
29. Mechell Alexandra Rivas Veloz, f. 1991 í Venesúela.
30. Milena Mihaela Patru, f. 2011 í Færeyjum.
31. Mouna Nasr De Alamatouri, f. 1987 í Venesúela.
32. Nancy Klemm, f. 1960 í Bandaríkjunum.
33. Polina Moroz, f. 1996 í Rússlandi.
34. Richard Loeser Friedman, f. 1940 í Bandaríkjunum.
35. Richlove Bafi Owusu, f. 2016 í Gana.
36. Sarkodie Joseph Osei, f. 2010 í Gana.