fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

RÚV hafi ekki átt frumkvæði að því að taka Húsó úr birtingu – Vísi frá sér ábyrgð þrátt fyrir eignarhlut og 95 milljóna framlag

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dóra Jóhannsdóttir leikstjóri, handritshöfundur og leikkona greinir frá því í nýjum Facebook-pistli að þess misskilnings hafi gætt, í kjölfar pistils hennar þar á undan, að það hafi verið að frumkvæði RÚV sem að leikna þáttaröðin Húsó hafi verið tekin úr birtingu á vef miðilsins. Dóra sem er ein af handritshöfundum þáttanna hefur barist fyrir því að hennar nafni verði bætt inn á höfundalistann, sem einnig er kallaður kreditlisti, en af óþekktum ástæðum var hennar nafn tekið af listanum. Hún segir að RÚV vísi ábyrgð á málinu alfarið á framleiðslufyrirtækið, sem stóð að gerð þáttanna, fyrir að þessi fjölmiðill í almannaeigu hafi lagt nærri 100 milljónir króna til þáttagerðarinnar og eigi hlut í hinu fullkláraða verki.

DV og fleiri fjölmiðlar fjölluðu um síðasta pistil Dóru en hann var hægt að skilja þannig að RÚV hafi tekið Húsó úr birtingu að eigin frumkvæði. Dóra sagði í pistlinum að þættirnir yrðu ekki birtir aftur fyrr en framleiðslufyrirtækið á bak við þættina, Glassriver, myndi afhenda RÚV leiðréttan höfundalista.

Segir RÚV hafa tekið íslenska sjónvarpsþáttaröð úr birtingu og muni ekki birta hana aftur fyrr en að uppfylltum skilyrðum

Í nýja pistlinum segir Dóra hins vegar um misskilning að ræða. Það hafi verið þvert á móti Glassriver, sem hafi farið fram á að Húsó yrði fjarlægt af miðlum RÚV. Það hafi ekki verið að frumkvæði RÚV sem hafi orðið við beiðni framleiðandans án nokkurra skýringa til áhorfenda. Hún sjálf hafi aldrei beðið um að þetta yrði gert.

Dóra segir að Glassriver hafi jafnframt staðfest að Húsó hafi hvorki verið selt erlendis né sent á erlendar hátíðir. Fyrirtækið muni hins vegar kynna aðra þáttaröð á Berlinale Series Market í febrúar, sömu hátíð og henni hafi verið boðið að taka þátt í pallsborðumræðum á sem höfundur Húsó, án þess að hún hafi aðgang að eigin verki né myndefni úr því til kynningar.

Lítil svör

Dóra segist ítrekað hafa óskað eftir því við RÚV og Glassriver að höfundalistinn verði leiðréttur. Fáum erindum hennar hafi verið svarað. Þau svör hafi borist hins vegar frá RÚV að ábyrgðin liggi alfarið hjá Glassriver, þrátt fyrir að RÚV hafi verið upplýst um að höfundaréttur hennar væri ekki virtur frá því áður en tökur hófust. Þá hafi RÚV lagt til 95 milljónir króna af almannafé í fjármögnun þáttanna og eigi 15 prósent eignarhlut í verkinu.

Dóra vill meina að Glassriver hafi staðfest að það sé framkvæmanlegt að gera þá leiðréttingu sem hún fari fram á en enn hafi það ekki verið gert heldur slík leiðrétting ítrekað verið gerð óheimilum skilyrðum háð, sem samræmist ekki lögbundnum sæmdarrétti. Hver þessi skilyrði nákvæmlega eru nefnir hún ekki.

Það sé því engin lausn að fjarlægja Húsó af miðlum RÚV. Þvert á móti valdi það henni mælanlegu faglegu tjóni, meðal annars þar sem hún hafi verið beðin um að leggja fram eintak af seríunni vegna áðurnefndra pallsborðsumræðna í Berlín en þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir til Glassriver og RÚV hafi hún hvorki fengið aðgang að eigin verki né myndefni úr því.

Þetta sé ekki eðlileg staða í ríkisstyrktu verkefni.

Dóra segist hafa notað bæði mikla fjármuni og óhóflega orku í þessa baráttu við að fá sinn höfundar- og sæmdarrétt viðurkenndan og segist ekkert langa meira en að snúa sér að meira uppbyggjandi og skapandi verkefnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart