fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ákæran gegn Helga Bjarti: Sakaður um húsbrot, nauðgun, kynferðisbrot gegn barni og vændiskaup

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 12:20

Helgi Bjartur Þorvarðarson. Mynd: Félag fasteignasala

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

DV  hefur borist ákæra í máli héraðssaksóknara gegn Helga Bjarti Þorvarðarsyni, í hinu svokallaða Hafnarfjarðarmáli.

Helgi Bjartur er ákærður fyrir húsbrot, nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa árla morguns 14. september 2025, ruðst í heimildarleysi inn í íbúðarhús í Hafnarfirði og þar, í svefnherbergi á rishæð hússins, klætt sig úr buxum og lagst upp í rúm hjá dreng sem þar svaf.

Hann hafi síðan brotið kynferðislega gegn drengnum. Er hann sagður hafa beitt drenginn ofbeldi og ólögmætri nauðung í krafti yfirburða sinna í formi aldurs og styrkleika. Hann hafi notfært sér að drengurinn gat ekki spornað við verknaðinum sökum aldurs og svefndrunga.

Í öðrum lið ákærunnar er Helgi Bjartur síðan ákærður fyrir vændiskaup.

Samkvæmt heimildum DV neitaði Helgi Bjartur sök um húsbrot og kynferðisbrot gegn drengnum en játaði vændiskaup, við þingfestingu málsins í morgun.

Aðalmeðferð í málinu verður þann 23. mars næstkomandi, við Héraðsdóm Reykjaness. Réttað verður fyrir luktum dyrum.

Sjá einnig: Helgi keypti þjónustu vændiskonu sama kvöld – Síminn hans hefur ekki fundist

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“