fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Páll segir sögusagnir á kreiki um að Þórdís Kolbrún sé á leið í nýtt starf

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi útvarpsstjóri, var gestur Bítisins á Bylgjunni í morgun ásamt Vigdísi Hauksdóttur, fyrrverandi þingkonu og borgarfulltrúa.

Páll og Vigdís ræddu þar meðal annars um stjórnmálin, en óhætt er að segja að spennan sé farin að magnast vegna yfirvofandi sveitarstjórnarkosninga í maí næstkomandi. Fóru þau meðal annars yfir stöðuna innan Samfylkingarinnar þar sem Pétur Marteinsson hafði betur gegn borgarstjóranum Heiðu Björg Hilmisdóttur í prófkjöri flokksins um liðna helgi.

Þá ræddu þau stuttlega nýtt starf Bjarna Benediktssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, en eins og greint var frá í gær er hann nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vigdís óskaði Bjarna til hamingju og sagðist telja að hann ætti eftir að standa sig vel.

Páll skaut svo inn í og varpaði ljósi á athyglisvert slúður sem hann heyrði um helgina.

„Það urðu miklar sögusagnir og kenningar núna um það í ákveðnum kreðsum um helgina að annar forystumaður í Sjálfstæðisflokknum væri að fara í nýtt starf. Það er að segja að Þórdís Kolbrún væri að verða sendiherra,“ sagði Páll.

Þórdís er fyrrverandi varaformaður flokksins og hefur setið á þingi fyrir hann frá árinu 2016. Hún ákvað að bjóða sig ekki fram til áframhaldandi varaformennsku á landsfundi flokksins í fyrra og var Jens Garðar Helgason kjörinn varaformaður í hennar stað.

Páll lagði áherslu á að þetta væru sögusagnir sem hann hefði heyrt í ákveðnum kreðsum. Hann sagði það ekki hafa fylgt sögunni hvar þetta starf ætti að vera, að öðru leyti en að það væri í Evrópu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Í gær

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar