fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Helgi Áss segir bless við Sjálfstæðisflokkinn: „Frá og með deginum í dag er ég liðsmaður Miðflokksins“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 08:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að segja skilið við flokkinn og ganga til liðs við Miðflokkinn. Helgi Áss tilkynnir þetta í færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi brugðist kjósendum sínum í of mörgum málaflokkum.

„Undanfarin ár hefur mér hlotnast sá heiður að starfa sem kjörinn fulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur en formleg afskipti mín af stjórnmálum hófust í aðdraganda opins prófkjörs Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 2022 en í prófkjörinu fékk ég samtals yfir 2500 atkvæði,“ segir Helgi meðal annars.

Hann segir að stefnumál og áherslur hans hafa verið skýrar. Beita þurfi öguðum vinnubrögðum við stjórn Reykjavíkurborgar og þá helst við fjármálastjórn sveitarfélagsins.

„Reykjavíkurborg á fyrst og fremst að veita fólki, félagasamtökum og fyrirtækjum grunnþjónustu sem við öll getum verið stolt af. Í skjóli heilbrigðrar forgangsröðunar á að koma hlutum á hreyfingu en eyða hvorki tíma né orku í gæluverkefni og samsemdarstjórnmál (e. identity politics). Um þessi grundvallaratriði ætti allt borgaralega þenkjandi fólk að geta orðið ásátt um.“

Sjálfstæðisflokkurinn setið hjá

Helgi segir að í borgarstjórnarkosningunum í vor standi kjósendur frammi fyrir vali. „Vilja þeir áframhaldandi stjórn Samfylkingarinnar og fylgihnatta þeirra í Ráðhúsi Reykjavíkur, eða vilja þeir veita flokkum umboð til að breyta forgangsröðun borgarinnar í krafti skýrrar stefnu, reista á borgaralegum gildum. En hvaða fólki og flokkum er best treystandi til að bæta Reykjavík? Þegar þeirri spurningu er svarað verður til þess að líta að á yfirstandandi kjörtímabili hafa kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn í of mörgum mikilvægum málum, sérstaklega á sviði skipulags- og samgöngumála, setið hjá, í stað þess að taka skýra afstöðu. Sú nálgun hefur valdið mér síendurteknum vonbrigðum. Þeir kjósendur flokksins sem hafa fylgst grannt með borgarmálum deila án efa þeim vonbrigðum mínum.“

Helgi segir að allar götur frá því að hann hóf þátttöku í áðurnefndu prófkjöri í febrúar 2022 hafi hann verið andsnúinn því með hvaða hætti verið er að byggja upp nýtt almenningssamgöngukerfi, borgarlínuna, á meðan ýmsir grunninnviðir núverandi samgöngukerfis í Reykjavík hafa setið á hakanum.

„Afstaða Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík til samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins hefur ekki verið nægjanlega skýr og í þessu stóra máli hefur málflutningur núverandi oddvita borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins hvorki verið sannfærandi né trúverðugur. Ég er hins vegar sammála nýlegri ályktun grasrótar flokksins í Reykjavík um að endurskoða beri „samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins frá grunni“.“

Hraðsoðin instagram- og elítustjórnmál

Helgi segir enn fremur að á yfirstandandi kjörtímabili hafi honum orðið ljóst að honum þykir mikilvægt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi þá ásýnd að hann standi undir kjörorðinu „stétt með stétt“.

„Sú ásýnd er fjarlæg þegar boðið er upp á hraðsoðin instagram- og elítustjórnmál, stjórnmál sem ganga meðal annars út á að sýna þátttakendur í stjórnmálum í litum ríkisdæmis og velmegunar. Þessu til viðbótar hefur Sjálfstæðisflokkurinn brugðist kjósendum sínum í of mörgum málaflokkum, svo sem eins og í að verja fullveldi Íslands, í útlendingamálum, í orkumálum og í að verja grunngildi réttarríkisins, svo sem að fólk sé ekki dæmt af dómstól götunnar og því slaufað, jafnvel áratugum eftir að það lést.“

Helgi segist líta svo á að Sjálfstæðisflokkurinn hafi yfirgefið hann og þúsundir annarra sem trúðu að hann væri skjaldborg og skjól borgaralegrar gilda.

„Fyrir mig er um stóran bita að kyngja, þar eð ég hef haft trú á grunngildi sjálfstæðisstefnunnar frá unga aldri. Stjórnmálaleg viðhorf mín, bæði í borgar- og landsmálum, eiga núna fremur samleið með Miðflokknum.“

Reiknar með að taka sæti á lista flokksins

Hann segir að málflutningur formanns Miðflokksins á undanförnum árum hafi oft veitt honum innblástur. Þar sé lögð áhersla á „skynsemishyggju“ og að efnið skipti meira máli en áferð og ásýnd.

„Láta á verkin tala, ekki ræða um í löngu máli fagurgala sem engu máli skiptir fyrir hag almennings. Þegar horft er til stefnuskrár Miðflokksins, til dæmis í skipulags- og samgöngumálum, þá sé ég ekki betur að málefnaleg samstaða sé milli áherslna minna og flokksins. Flokkurinn hyggst til framtíðar vinna eftir því að gera það sem hann segist ætla að gera. Ég treysti á og hef mikla trú á að þau einkunnarorð haldi. Bæði til skemmri og lengri tíma sé ég ekki hvernig ég geti réttlætt veru mína lengur í Sjálfstæðisflokknum í samanburði við þann kost að ganga til liðs við Miðflokkinn,“ segir Helgi sem endar yfirlýsingu sína á þessum orðum:

„Frá og með deginum í dag er ég liðsmaður Miðflokksins og reikna ég með að taka sæti á framboðslista þess flokks fyrir borgarstjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi. Á fundi borgarstjórnar í dag, þriðjudaginn 20. janúar 2026, sem og út þetta kjörtímabil, mun ég sinna áfram starfsskyldum mínum sem fyrsti varaborgarfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum