fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Guðbrandur segir af sér þingmennsku vegna tilraunar til vændiskaupa

Ritstjórn DV
Föstudaginn 16. janúar 2026 07:18

Guðbrandur hefur ákveðið að segja af sér þingmennsku.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, hefur ákveðið að segja af sér þingmennsku. Guðbrandur gerði tilraun til að kaupa vændi árið 2012 og tók hann ákvörðun um afsögn þegar Vísir hugðist fjalla um málið.

Ítarlega er fjallað um þetta á vef Vísis nú í morgun.

Í fréttinni kemur fram að Guðbrandur hafi verið kallaður til yfirheyrslu vegna rökstudds gruns um vændiskaup. Í yfirlýsingu sem hann sendi miðlinum í gærkvöldi sagðist hann hafa haft samband við konu með vændiskaup í huga, en snúist hugur þegar á staðinn var komið.

Hann var kallaður til yfirheyrslu vegna málsins en neitaði sök og kveðst ekkert hafa heyrt frekar frá lögreglu vegna másins.

Í yfirlýsingu sem hann sendi Vísi kemur fram að hann hafi gert stór mistök sem hann harmi mjög, sérstaklega gagnvart fjölskyldu sinni og vinum og ekki síður samstarfsfólki í Viðreisn og á Alþingi. Þá verði að ríkja friður og traust um störf ríkisstjórnarinnar og þingmenn hennar.

„Ég hef því ákveðið að segja af mér þingmennsku samstundis og hef látið forystu flokksins vita af því,“ segir Guðbrandur meðal annars við Vísi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”