fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Skemmtir sér konunglega yfir stóra brandaramálinu og birtir sérvalin ummæli – „Ekki bannað að hafa gaman“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 13:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn og uppistandarinn Stefán Einar Stefánsson olli uppþoti með brandara um rithöfundinn Nönnu Rögnvaldardóttur sem mörgum þótti með eindæmum ósmekklegur. Þar líkti hann Nönnu við færeyskan þjóðarrétt.

Sjá einnig: Hraunað yfir Stefán Einar vegna ummæla hans um Nönnu – „Þetta er viðurstyggð“

Stefán Einar tjáði sig um fjaðrafokið í færslu á Facebook á mánudaginn þar sem hann skrifaði gagnrýnina á herskáa vinstri-elítu. Þar vakti hann athygli á því að þessir gagnrýnendur væru litlu skárri en brandarinn sem þeir gagnrýndu og hefði Stefán Einar verið kallaður öllum ljótum nöfnum. Taldi Stefán Einar í færslunni að það væri óþarfi að eyða orðum að „svona barnaskap“

Sjá einnig: Stefán Einar svarar fyrir brandarann um Nönnu – „Það á ekki að eyða orðum á svona barnaskap“

Hann virðist þó hafa skipt um skoðun í framhaldinu. Undanfarinn sólarhring hefur hann verið að munnhöggvast við gagnrýnendur og hefur nú birt aðra færslu þar sem hann tekur saman sérvalin ummæli sem um hann hafa fallið í netheimum undanfarna daga.

„Eldar hafa geisað á netinu í kjölfar þess að ég sagði óviðeigandi brandara um megrunarleiðangur Nönnu Rögnvaldardóttur, matgæðings, í fyrsta þætti Þjóðmála á nýju ári.
Vinstri-elítan hefur gjörsamlega farið af límingunum, og ekki af væntumþykju í garð rithöfundarins, heldur vegna þess að hún trúir því að þarna hafi stóra tækifærið gefist til þess að koma höggi á mig. Þau eiga dálítið erfitt með að sætta sig við tilvist mína.“

Þrátt fyrir fullyrðingu um að gagnrýnendur séu ekki keyrðir áfram af væntumþykju í garð Nönnu beinir Stefán Einar næst máli sínu að færslu eftir uppgjafaprófessorinn Eirík Rögnvaldsson, en Eiríkur er stóri bróðir Nönnu.

„Einn af þeim sem telur sig knúinn til þess að fella dóm er hinn glaðlyndi Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus sem segir að ég sé meiri skítakarakter og ómerkingur en hann hafi áður talið (held að það sé ofsögum sagt – álitið hefur alltaf verið þetta enda hatar hann fólk úr mínum ranni).

Fjöldi fólks tekur undir með Eiríki, meðal annars Svandís Svavarsdóttir, hinn glæsti formaður VG sem kallar mig óþverra. Fólk óskar þess að ég stikni í helvíti, ýjar að því að ég sé á eiturlyfjum og svo vilja allnokkrir að ég hoppi upp í einn mikilvægasta hluta líkamans, sem ekki skal nefndur sérstaklega hér.“

Stefán segist láta sér þessi skrif í léttu rúmi liggja enda afhjúpi þau bara skinhelgi þeirra sem andskotast yfir orðbragði annarra með öðru verra. Segir hann umræðuna um brandarann eiga rætur að rekja til vók-menningarinnar, en réttlætisriddarar eigi í dag bágt þar sem vókið virkar ekki lengur.

Sjá einnig: Fjölskylda Nönnu lætur Stefán Einar heyra það – „Ennþá meiri skítakarakter og ómerkingur en ég hafði áttað mig á“

Fjölmiðlamaðurinn ætlar áfram að deila skoðunum sínum og segja brandara, sama þótt sumum þyki þeir lélegir.

„Allt er það hluti af tjáningarfrelsinu og húmor verður að vera förunautur okkar í opinberri umræðu. Því ólíkt því sem Eiríkur Rögnvaldsson heldur fram þá er ekki bannað að hafa gaman.“

Síðan birtir Stefán Einar sérvalin ummæli sem um hann hafa fallið undir færslu Eiríks á Facebook og segir: „Ég er ekki hörundsár. Ég hef sjaldan lifað gleðilegri og skemmtilegra daga en einmitt nú“

Hér eru sérvöldu ummælin: 

  • Meiri skíthællinn
  • Sífulli kókhausinn
  • Ömurleg Moggadrusla
  • Uppskafningur Moggans
  • Siðspilltur dóni
  • Skítakarakter
  • Ómerkingur
  • Algjört ógeð
  • Ómenni
  • Algjörlega siðlaus
  • Sneyddur allri samkennd
  • Þvílíkur aumingi
  • Ógeðslegur
  • Algjör mannleysa
  • Er hægt að vera meiri skíthæll?
  • Óþverri
  • Íslandsmet í skítmennsku
  • Skítseiði með rotið hjarta
  • Algjört skítseyði
  • Hvenær ætlar Morgunblaðið að losa sig við þessa viðurstyggð?
  • Lítill skítaköggull
  • Afskaplega ómerkilegt fyrirbæri
  • Helvítis, djöfulsins, andskotans pakk
  • Lítilmenni
  • Skítseyði
  • Örviti
  • Illgjarn
  • Skíts er að vænta úr rassi
  • Hoppaðu upp í rassgatið á þér
  • Helvítis skoffínið þitt
  • Brenndu í helvíti
  • Lélegt eintak af manneskju
  • illkvittinn og rætinn
  • Í raun bara kúkur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”