fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Sakaður um að nauðga stjúpdóttur sinni ítrekað frá því hún var sex ára

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 14:08

Mynd: DV/Maggi gnúsari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður hefur verið ákærður fyrir stórfellt brot í nánu sambandi, nauðgun, tilraun til nauðgunar og kynferðisbrot gegn barni, með því að hafa án samþykkis margítrekað haft önnur kynferðismök en samræði við stjúpdóttur sína, með því beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung og með því að nýta sér yfirburði sína og traust hennar og trúnað sem stjúpfaðir og notfæra sér að stúlkan gat hvorki spornað við
verknaðinum né skilið þýðingu hans vegna aldurs og eftir atvikum svefndrunga.

Í ákæru héraðssaksóknara sem DV hefur undir höndum hafa verið afmáðar lýsingar á 12 brotum mannsins gegn barninu. Virðist sem þær lýsingar séu of óhugnanlegar eða stríði gegn persónuvernd barnsins til að þær komi fyrir almenningssjónir.

Ennfremur er maðurinn ákærður fyrir stórfellt brot í nánu sambandi og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa ítrekað áreitt barnið með kynferðislegu tali.

Brot mannsins gegn barninu áttu sér stað frá vorinu 2023 og fram til haustsins 2025, á heimili þeirra. Stúlkan var sex til níu ára gömul á þessu tímabili.

Fyrir hönd stúlkunnar er gerð krafa um miskabætur að fjárhæð sex milljónir króna.

Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, 14. janúar. Réttarhöld í málinu eru fyrir háð fyrir luktum dyrum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“