

„Hann er klikkaður. Allir vita það, jafnvel fuglarnir vita það,“ segir grænlenski fiskimaðurinn Peter Hessner í viðtali við Mirror. Blaðamenn breska æsifréttamiðilsins skruppu til Grænlands og tóku íbúa á förnum vegi tali. Rætt var um þann vilja Donalds Trump Bandaríkjaforseta að innlima Grænland og taka yfir stjórn á eyjunni stóru.
Allir sem rætt var við lýstu sig andsnúna áformum forsetans. Hin sextugi Morten Meller segir: „Nei. Hann getur ekki gert þetta. Við verðum að hafa frelsið okkar.“
Hann bætir við: „Donald Trump heldur að hann geti keypt okkur, borgað peninga fyrir okkur, en við erum manneskjur. Það er ekki hægt að kaupa okkur.“
Í greininni segir að flestir íbúar í Nuuki líti á Trump sem glæpon og fyrirætlanir hans feli í sér ógn við Grænlendinga.
Áðurnefndur Peter Hessner segir:
„Ef mér yrði boðið sjálfstæði á morgun myndi ég taka því en ég tæki ekki samningi um að verða hluti af Ameríku fyrir hvaða peninga sem er. Við viljum frelsið.“
Telur Hessner að Grænlendingar gætu staðið á eigin fótum án peninga frá Danmörku eða Bandaríkjunum „Við eigum mikið af málum og mikið af fiski í sjónum. Við gætum opnað námur og grætt mikla peninga fyrir fólkið okkar. Við getum líka náð langt í sjávarútvegi.“
„Ég held ekki að Donald Trump vilji vesen með NATO en maður veit aldrei þegar maður á í höggi við einhvern sem er brjálaður.“