Ruslatunnugreifinn, Count Binface, bar sig vel þrátt fyrir að hafa tapað í aukakosningum til þingsætis kjördæmisins Clacton, í Essex í Suðaustur- England, í gær. Fékk greifinn rétt undir 27 prósent atkvæða sem er líklega fáheyrt af grínframbjóðanda. Efnt var til kosninganna eftir að leiðtogi Umbótaflokksins, Reform, Nigel Farage, sagði af sér þingsætinu eftir að efnt var til rannsóknar vegna hás fjárstyrks sem hann hlaut. Farage bauð sig aftur fram og sigraði með 63,3 prósentum atkvæða en fylgi hans jókst frá síðustum kosningum en kjörsókn var töluvert minni.
Fjallað hefur verið um kosningarnar víða um heim bæði vegna stöðu Farage en ekki síður framgöngu Count Binface en maðurinn á bak við hann er grínistinn Jonathan Harvey.
Í síðustu þingkosningum árið 2024 var kjörsókn í Clacton 58,7 prósent og Farage var kjörinn þingmaður kjördæmisins með 46,2 prósentum atkvæða. Kjörsóknin í þetta sinn var 44,4 prósent en það hafði sitt að segja að allir flokkar sem eiga sæti á þingi, nema Umbótaflokkurinn, tóku ekki þátt og sögðu kosningarnar farsa sem Farage hefði staðið fyrir eftir að efnt var til rannsóknar á fimm milljóna punda (um 830 milljónir íslenskra króna) fjárstyrk sem hann fékk fyrir síðustu kosningar,
Sigur en ekki ósigur
Farage greindi ekki frá styrknum fyrir kosningarnar 2024 en styrkurinn var frá auðkýfingnum Christopher Harborne sem býr í Taílandi en hann auðgaðist á rafmyntaviðskiptum og hefur verið einn helsti fjárhagslegi bakhjarl Umbótaflokksins.
Nú þegar Farage hefur verið endurkjörinn mun rannsókn á styrkveitingunni hefjast á ný af stofnun sem hefur eftirlit með fjárreiðum þingmanna.
Athygli vakti í Bretlandi að Farage mætti ekki á hinn hefðbundna upplestur á staðfestum úrslitum en yfirleitt koma þá allir frambjóðendur í viðkomandi kjördæmi saman, úrslitin lesin upp og því lýst formlega yfir hver þeirra er réttkjörinn þingmaður kjördæmisins.
Flokkur hans bar því við að trúverðug ógn við öryggi Farage hafi verið til staðar en í breskum fjölmiðlum virtist lögreglan á svæðinu ekki taka undir það. Farage hafði einnig sagt að sér hafi verið tjáð að hópur fólks ætlaði sér að trufla upplesturinn á lokatölunum og talninguna sjálfa. Í yfirlýsingu frá lögreglunni í Essex kom fram að það væri undir einstaklingum og flokkum komið hvort þeir mættu og fullyrt að öryggi á talningastaðnum hefði verið nægilega tryggt.
Það er raunar afar sjaldgæft í Bretlandi að sigurvegari í kjördæmi mæti ekki við upplestur á lokatölum. Síðast gerðist það árið 1981 þegar Bobby Sands, liðsmaður IRA, mætti ekki við að hlýða á að hann hefði verið kjörinn þingmaður en hann var þá í fangesli og hungurverkfalli.
Talið er að Farage hafi hins vegar einfaldlega ekki viljað láta mynda sig við hlið Count Binface og annarra frambjóðenda sem flestir buðu sig fram í gríni.
Kerfið og grínið
Farage mun hafa sagt á fundi flokks síns í gærkvöldi að hann hefði sigrað frambjóðanda valdastéttarinnar, Count Binface.
Greifinn fagnaði árangri sínum á samfélagsmiðlum sínum og í viðtölum við fjölmiðla. Sagðist hann eiga von á að efnt yrði til nýrra kosninga í kjördæminu innan nokkurra vikna.
Sagðist hann á X vera sigurvegarinn af þeim frambjóðendum sem hafi mætt á upplestur lokaúrslitanna. Sagðist hann vera hæstánægður með árangurinn.
Aðspurður á Sky News um þau orð Farage að hann hefði verið frambjóðandi valdastéttarinnar svaraði greifinn með því að benda á valdastöðu Farage sem hafi verið þingmaður, einn áhrifamesti stjórnmálamaður Bretlands og meðlimur í karlaklúbbi:
„Ef það er ekki að vera í valdastéttinni þá veit ég ekki hvað það er. Ég er bara einsamall geimbardagamaður.“