Frá og með haustinu verða innheimtar 450 krónur á klukkutímann þegar lagt er lengur við fjóra klukkutíma við verslunarmiðstöðina Smáralind. Áfram verður frítt að leggja í fjóra tíma og sagði Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar, í kvöldfréttum Sýnar í gær að þeir sem koma á bíl í Smáralind og eru skemur en fjóra tíma muni ekki finna fyrir neinu.
„Aðsókn í Smáralind hefur aukist verulega á síðustu árum. Stæðin við bygginguna hafa í vaxandi mæli verið nýtt til langtímadvalar, af fólki sem starfar eða býr í nágrenninu, með geymslu ökutækja sem ekki tengjast heimsóknum í Smáralind. Þetta hefur leitt til þess að viðskiptavinir hafa átt erfiðara með að finna laus stæði á hentugum stöðum við húsið,“ segir í tilkynningu frá Heimum fasteignafélagi.
Skilaboðin skýr: Ekki eiga bíl
Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins í Kópavogi, segir skilaboðin til íbúa í nýju húsunum í Silfursmára og Sunnusmára vera skýr.
„Það er samt ekkert verið að þrengja að fjölskyldubílnum í Kópavogi,“ segir hann í kaldhæðni á Facebook. „Hér eru aðgerðir eyrnamerktar íbúum í Silfur- og Sunnusmára og eru skilaboðin skýr: Ekki eiga bíl.“
Hann óttast að þetta sé byrjunin og ætlar að setja málið á dagskrá:
„Í hvert skipti sem ég reyndi að benda á í hvað stefndi þá var ég málaður upp sem samsæriskenningarmaður. Því miður óttast ég að þetta sé bara byrjunin og má vænta enn fleiri svipaðra aðgerða í undirbúningi fyrir Borgarlínuna í Kópavogi,“ segir hann. „Auðvitað eru Heimar einkarekið fyrirtæki en þessi ákvörðun hefur áhrif á yfir þúsund íbúa í nágrenninu og mun ég setja þetta mál á dagskrá til umræðu.“
Þetta sé afleiðing þess að ekki voru nógu mörg bílastæði við nýju fjölbýlishúsin fyrir ofan Smáralind. „Kaupendum bauðst að kaupa stæði í kjallara á 7 milljónir króna.. en hef heyrt að fasteignasalar hafi alveg verið gjarnir að benda á að næg stæði væru á nærsvæðinu.“
Frekar í hvíldarinnlögn
Birgir Örn Guðjónsson, áður þekktur sem Biggi Lögga, skaut á Einar Jóhannes:
„Ef ég verð einhverntíman lengur en fjóra tíma í Smáralind held ég að ég þurfi frekar að huga að því hvernig ég muni greiða fyrir hvíldarinnlögn á heilsustofnunina í Hveragerði frekar en greiðslu umfram þessa fjóra tíma sem kosta ekkert,“ segir Birgir. „En án gríns þá er fullkomlega skiljanlegt að reynt sé að komast hjá því að svona bílastæði séu notuð sem langtíma geymslustæði. Held að eigendur Smáralindar séu pottþétt ekki með nein markmið um í að fækka bílum í umferð.“
Einar Jóhannes segir þetta snúast að íbúunum.
„Eins og ég bendi á þá er þetta augljóslega stíluð aðgerð gegn íbúum sem búa þarna í Silfur- og Sunnusmára, en þar voru byggðar íbúðir með 0,75 bílastæðum og þurfti að kaupa þau sérstaklega með íbúðinni. Þetta er þegar þröngt og eru áform hjá bænum að þrengja enn frekar á svæðinu,“ segir hann.
„Spurning líka hvort fyrirtækin ætli að bera kostnaðinn fyrir starfsmennina sína eða ekki.“