Fréttir

Réðst á konu fyrir utan Ríkið en finnst ekki

Mynd
Ekki kemur fram fyrir utan hvaða verslun Vínbúðarinnar árásin var framin að öðru leyti en því að verslunin sé í Reykjavík.
Ekki hefur tekist að hafa upp á manni sem hlaut dóm, í Héraðsdómi Reykjavíkur, í upphafi árs fyrir ýmis brot, þar á meðal að ráðast á konu fyrir utan eina af verslunum Vínbúðarinnar í Reykjavík, til að birta honum dóminn. Því er farin sú leið að birta manninum dóminn í Lögbirtingablaðinu.

Maðurinn var ákærður fyrir þrjú mismunandi þjófnaðarbrot. Fyrir að stela öryggismyndavél, matvörum í Bónus og Krónunni og einnig var hann ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar í Reykjavíkur Apóteki en hann sleppti vörunum þegar starfsmaður reyndi að stöðva hann en maðurinn sló í hönd starfsmannsins, sem er kona, og greip í höfuð hennar.

Loks var maðurinn ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa kýlt konu í hnakkann en árásina framdi maðurinn fyrir utan eina af verslunum Vínbúðarinnar í Reykjavík í apríl 2024. Hlaut konan tognun á hálshrygg.

Krafði konan manninn um 1,5 milljón króna í miskabætur auk greiðslu sjúkrakostnaðar.

Maðurinn var upphaflega ákærður fyrir að ráðast á konuna inni í versluninni en ákæran var leiðrétt fyrir dómi og því breytt í að árásin hefði verið framin fyrir utan verslunina.

Síbrotamaður


Maðurinn játaði brot sín skýlaust. Hann á nokkurn sakaferil að baki. Hann hafði áður hlotið alls átta dóma fyrir meðal annars auðgunarbrot,líkamsárás,brotgegnvaldstjórninni,nytjastuld, umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana-og fíkniefni. Maðurinn hlaut síðast dóm árið 2023 fyrir ýmis brot þar á meðal blygðunarsemisbrot, líkamsárás, hótun, þjófnað, nytjastuld og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Í síðasttalda skiptið var maðurinn dæmdur í átta mánaða fangelsi.

Við ákvörðun refsingar í þetta sinn var litið meðal annars til þess að maðurinn játaði brot sín og á langa sögu um vímuefnaneyslu og geðræn vandamál samhliða því.

Við hæfi þótti að dæma manninn í þriggja mánaða fangelsi. Konunni sem hann réðst á voru dæmdar 400.000 krónur í miskabætur, 37.675krónurvegna útlagðs sjúkrakostnaðar og 267.840 krónur í málskostnað. Maðurinn þarf því að greiða konunni um 700.000 krónur auk vaxta og dráttarvaxta af miskabótunum.