
The Telegraph segir að skyndilega hafi úkraínskur hermaður birst á skjánum og hafi hótað að drepa alla háskólanemana ef þeir gengu til liðs við rússneska herinn.
Upptaka af þessu hefur verið á miklu flugi á samfélagsmiðlum.
„Ég er hermaður, bara ekki rússneskur. Ég er Úkraínumaður. Ég vil bara segja við ykkur: Guð bannar ykkur að koma hingað og því á ég engan annan kost en að drepa ykkur, hvern og einn, sem skrifar undir samning við herinn,“ sagði hann og bætti við að Úkraínumenn hafi tekið myndir af andlitum allra fundargestanna.