fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Snorri gagnrýnir kröfu Loga um útilokun Rússa frá Feneyjatvíæringnum – „Slík tvöfeldni grefur undan trúverðugleika Evrópu“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 24. apríl 2026 09:00

Snorri Ásmundsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Evrópskir menningarmálaráðherrar, þar á meðal Logi Einarsson, menningarmálaráðherra Íslands, hafa mótmælt fyrirhugaðri þátttöku Rússa í Feneyjatvíæringnum sem hefst þann 9. maí næstkomandi.

Feneyjartvíæringurinn er ein frægasta listahátíð heims og er haldinn á tveggja ára fresti. Rússar voru ekki með árin 2022 og 2024 vegna innrásarinnar í Úkraínu. Þeim var hins vegar boðin þátttaka að þessu sinni þrátt fyrir mikla andstöðu Evrópusambandsins. Ráðherrar Evrópusambandsríkjanna hafa birt yfirlýsingu þar sem lýst er yfir áhyggjum af því að Rússar nýti þátttöku sína í hátíðinni til að varpa upp mynd af lögmæti og alþjóðlegri viðurkenningu sem ekki sé í samræmi við raunveruleikann (sjá Vísir.is).

Logi Einarsson menningarmálaráðherra hefur sent frá samskonar yfirlýsingu og ESB-ráðherrarnir og er hann þá einn 23 ráðherra sem mótmælt hafa væntanlegri þátttöku Rússa í hátíðinni.

Ósamræmi og tvöfeldni

Snorri Ásmundsson, sem er mjög þekktur myndlistarmaður, birti grein um málið í Morgunblaðinu síðastliðinn þriðjudag. Hann segir að sú siðferðislega afstaða sem birtist í kröfu ráðherranna byggist á grundvallarreglum um ábyrgð og réttlæti, en hún sé lítils virði án samræmis. Snorri skrifar:

„Á sama tíma og þessi krafa er sett fram eru aðgerðir Ísraels á Gasa ekki aðeins harðlega gagnrýndar á alþjóðavettvangi heldur til rannsóknar hjá alþjóðlega sakamáladómstólnum vegna meintra stríðsglæpa og glæpa gegn mannkyni. Saksóknari dómstólsins hefur farið fram á handtökuheimildir, meðal annars á hendur Benjamín Netanjahú.

Jafnframt hefur alþjóðadómstóllinn talið að trúverðugar vísbendingar séu fyrir hendi um aðgerðir sem kunni að falla undir bann við þjóðarmorði, og hefur krafist tafarlausra úrbóta. Þetta eru þyngstu ásakanir sem alþjóðakerfið getur sett fram. Samt ríkir þögn um menningarlega útilokun.

Það sama gildir um Bandaríkin, sem hafa ítrekað beitt hervaldi, meðal annars gagnvart Íran, án þess að það hafi haft sambærilegar afleiðingar á alþjóðlegum menningarvettvangi. Þetta er ekki tilviljun. Þetta er mynstur.“

Segir Snorri að afstaða ráðherranna virðist ekki byggjast á algildum siðferðisreglum heldur reglum sem séu sveigjanlegar eftir pólitískum hagsmunum. Sum ríki sem gerist sek um stríðsglæpi séu útilokuð en önnur ekki. Ef réttlætanlegt sé að útiloka þjóðir frá Feneyjartvíæringnum vegna stríðsglæpa eða mannréttindabrota hljóti sú regla að gilda jafnt um alla. Geri hún það ekki þá sé hún ekki siðferðisleg heldur valkvæð réttlæting.

Snorri segir ennfremur:

„Slík tvöfeldni grefur undan trúverðugleika Evrópu þegar hún talar um gildi, réttarríki og mannréttindi. Hún sendir þau skilaboð að þessi gildi séu ekki algild, heldur bundin við það hver brýtur þau.“

Segir hann að menning eigi ekki að vera vettvangur fyrir tvöfalt siðgæði.

„Annars er hún ekki lengur tjáning frelsis og sannleika heldur tæki valds.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar