

„Kerfið var hannað af körlum fyrir karla og það tekur á sig alls konar myndir. Alþjóðakerfið, fjármálamarkaðir, allt sem á því hangir er í rauninni þetta gamla kerfi sem var hannað fyrir margt löngu og kannski ekkert svo rosalega löngu síðan þegar maður hugsar um þetta í stóra samhenginu,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir í hlaðvarpinu Karlmennskan þar sem upp á hana eru borin hennar eigin orð frá 1995 um launamun kynjanna og hvers vegna hafi ekki enn tekist að leysa hann.
„Við erum enn þá að starfa innan feðraveldisins. Það verður bara að segjast eins og er. Þó að tímabundið á Íslandi séu konur í eiginlega öllum forystustörfum þá erum við samt að starfa innan kerfisins. Og sumum líður bara mjög vel í þessu kerfi.“
Þórunn hefur tekið þátt í sameiningu ýmissa afla eins og við stofnun Röskvu 1988 og sameiningu Alþýðuflokksins, Alþýðubandalagsins og Kvennalistans í Samfylkingu 11 árum síðar. Þrátt fyrir sameiningarkrafta Þórunnar hefur styr geisað innan Samfylkingarinnar undanfarin ár einkum vegna útlendingamála og nokkrir reynsluboltar yfirgefið flokkinn:
„Þú nefndir kanónur sem hafa yfirgefið Samfylkinguna, góðar vinkonur mínar, sem ég sé mjög mikið eftir. En ég held að ég sé ekki sammála þér um að þetta hafi splundrað [Samfylkingunni].“
Þórunn segir umræðu um útlendingamál viðkvæma og að viðurkennir að umræðan hafi færst til hægri.
„Ég held hins vegar að umræðan svona í heild sinni hafi færst til hægri ef við notum þann ás. Ég held að upplifun fólks á þessari miklu fjölgun útlendinga á Íslandi á síðustu 10 árum, sem er núna fimmti hver maður, að hún smitast yfir á allt og fólk ruglar öllu saman.”
Þórunn ættleiddi barn frá Kína, Hrafnhildi Ming. Hrafnhildur hefur lýst upplifun sinni af útlendingaandúð og fordómum, meðal annars í viðtali á Vísi í september árið 2024 með fyrirsögninni: Situr undir gelti, urri og að vera kölluð api.
Þórunn segist hafa áhyggjur af aukinni andúð gagnvart útlendingum á Íslandi.
„Ég hef miklar áhyggjur af rasismanum. Ég hef miklar áhyggjur af því sem að maður kallar svona hversdagsrasisma. Og ég veit að, af því það er bara, ég hef bara reynslu af því í minni fjölskyldu og er mjög meðvituð um það að það sem gerist þegar að umræðan færist á þennan stað, að útlendingar séu jafnvel hættulegir, meiri líkur til þess að þeir séu glæpamenn og guð má vita hvað, að þá skaðar það allt samfélagið, skaðar okkur öll, skaðar alla sem hér búa.“
„Það eru íslenskir karlar sem fremja glæpina. Við vitum alveg hverjar staðreyndirnar eru.“