fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Síminn kemst ekki lengra í dómskerfinu við að reyna að losna undan sekt – Braut lög um verðbréfaviðskipti

Ritstjórn DV
Mánudaginn 13. apríl 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Símans h.f. um að taka fyrir mál fyrirtækisins á hendur Seðlabankanum og íslenska ríkinu. Höfðaði fyrirtækið málið til að losna undan stjórnvaldssekt sem lögð var á það fyrir meðal annars brot á lögum um verðbréfaviðskipti. Snýst málið um sölu á dótturfélagi Símans, Mílu ehf. Sektin var lögð á þar sem Seðlabankinn taldi að upplýsingar sem áhugasömum kaupendum var veittur aðgangur að hafi verið innherjaupplýsingar en Síminn hafi ekki tímanlega skilgreint þær formlega sem slíkar. Bæði héraðsdómur og Landsréttur tóku undir þetta.

Fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabankans lagði sektina á vegna brota gegn þágildandi lögum um verðbréfaviðskipti og Evrópureglugerðar um markaðssvik. Deildu Seðlabankinn og Síminn um það hvort innherjaupplýsingar hafi myndast við þá ákvörðun stjórnar þess síðarnefnda í ágúst 2021 að hefja seinni áfanga í söluferli á dótturfélaginu, Mílu ehf. Í ákvörðuninni fólst að bjóða fjórum aðilum, sem skilað höfðu inn óskuldbindandi tilboðum í dótturfélagið, að kynna sér það nánar með það að markmiði að gera skuldbindandi, fullfjármagnað og skilyrðislaust tilboð í allt hlutafé þess innan sjö vikna.

Alls var Síminn sektaður um 76,5 milljónir króna, með ákvörðun Fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabankans í maí 2023. Fyrirtækið höfðaði mál til að fá ákvörðuninni hnekkt og krafðist endurgreiðslu.

Innherji

Héraðsdómur sýknaði hins vegar ríkið og Seðlabankann. Taldi dómurinn að upplýsingarnar hefðu uppfyllt öll hugtaksskilyrði innherjaupplýsinga í skilningi þágildandi laga um verðbréfaviðskipti og hefði Síminn því átt að birta þær eins fljótt og auðið var, samkvæmt lögunum, eða fresta birtingu þeirra, til samræmis við lögin, teldi hann þess þörf. Þá taldi dómurinn enga annmarka vera á stjórnvaldsákvörðuninni sem gætu leitt til þess að hún yrði felld úr gildi. Enn fremur var hafnað kröfu Símans um lækkun stjórnvaldssektarinnar. Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms að viðbættum frekari röksemdum.

Síminn fór fram á áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar á þeim forsendum að málið hefði verulegt almennt gildi og mikilvægt væri að Hæstiréttur tæki það fyrir. Dómur Landsréttar leiddi til réttaróvissu fyrir þátttakendur á fjármálamarkaði um inntak innherjaupplýsinga og mikilvægt væri að fá fordæmi Hæstaréttar um sakarefnið. Þá væri dómur Landsréttar bersýnilega rangur enda hafi rétturinn meðal annars dregið rangar ályktanir af dómi Evrópudómstólsins frá 2021 og þeim upplýsingum sem legið hafi fyrir Símanum í ágúst 2021. Enn fremur vildi Síminn meina að úrslit málsins vörðuðu sérstaklega mikilvæga hagsmuni fyrirtækisins þar sem það hefði mikla hagsmuni af því að skýrt væri hvenær innherjaupplýsingar yrðu til í þrepaskiptu ferli. Loks væri sektarfjárhæðin verulega há með hliðsjón af öllum atvikum málsins.

Hæstiréttur tekur hins vegar ekki undir þetta. Rétturinn lítur hvorki svo á að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni Símans í skilningi laga um meðferð einkamála. Þá verði ekki séð að málsmeðferð fyrir héraðsdómi eða Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant eða dómur Landsréttar bersýnilega rangur að formi eða efni til.

Beiðni Símans um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Með glóðarauga á báðum augum og nefbrot eftir árás á Hverfisgötu

Með glóðarauga á báðum augum og nefbrot eftir árás á Hverfisgötu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“