

Færri fluttu frá Íslandi en til þess á síðasta ári en þó fer fækkandi í þessum hópi. Fjöldi aðfluttra umfram brottflutta var meiri árið 2024 og hefur raunar farið jafnt og þétt niður á við síðan árið 2022.
Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá Hagstofu Íslands.
Í tilkynningunni segir að árið 2025 fluttust 3.167 fleiri til Íslands en frá landinu. Það séu færri en árið 2024 þegar aðfluttir umfram brottflutta voru 4.044. Flutningsjöfnuður hafi verið mestur árið 2022, þegar 8.660 fleiri hafi flutt til landsins en frá því, en síðan þá hafi jafnt og þétt dregið úr honum.
Samtals fluttust 18.674 manns til Íslands árið 2025 samanborið við 19.789 á árinu 2024. Alls fluttust 15.507 manns frá landinu á síðasta ári borið saman við 15.745 árið 2024, en aldrei hafa fleiri flutt frá landinu á einu ári en það ár.
Fram kemur að ef einungis sé litið til erlendra ríkisborgara hafi flutningsjöfnuður verið 3.512 manns sem sé samdráttur frá fyrra ári þegar flutningsjöfnuður erlendra ríkisborgara hafi verið 4.183. Árið 2022 hafi flutningsjöfnuður erlendra ríkisborgara verið 9.186 og hafi aldrei verið meiri. Flutningsjöfnuður á meðal íslenskra ríkisborgara hafi verið neikvæðue en brottfluttir hafi verið 345 fleiri en aðfluttir árið 2025. Flutningsjöfnuður íslenskra ríkisborgara hafi einnig neikvæður árið 2024 um 139.
Þetta hefur verið þróunin í megindráttum undanfarin ár að fleiri erlendir ríkisborgarar hafa flust til landsins en íslenskir og oft hafa fleiri í síðarnefnda hópnum flutt burt frá landinu en til þess. Sjá má þróunina nánar á þessu línuriti Hagstofunnar.
Leiðin liggur til Danmerkur
Í tilkynningunni segir að af þeim 4.946 íslensku ríkisborgurum sem flutt hafi af landi brott árið 2025 hafi 3.505 flutt til Danmerkur, Svíþjóðar eða Noregs. Flesti hafi flutt til Danmerkur, eða 1.997, en næst flestir til Svíþjóðar eða 1.063. Flestir íslenskir ríkisborgarar sem hafi flust til Íslands á árinu hafi einnig komið frá þessum löndum eða 3.117 af 4.603. Flestir hafi komið frá Danmörku eða 1.502.
Flestir erlendir ríkisborgarar hafi á sama tíma flust til Póllands eða 2.687 af 10.561. Þaðan hafi líka komið flestir erlendir ríkisborgarar á síðasta ári eða 2.798 af 14.073. Næst flestir erlendir ríkisborgarar hafi flust til landsins frá Úkraínu árið 2025 eða 1.131 manns.
Hagstofan segir í tilkynningu sinni að eins og síðustu ár hafi fjölmennasti hópur aðfluttra og brottfluttra árið 2025 verið á aldrinum 20–29 ára. Rúmleg 37 prósent brottfluttra hafi verið á þessu aldursbili og rúmlega 37 prósent aðfluttra. Af einstökum árgöngum hafi 25 ára einstaklingar verið fjölmennasti hópurinn af brottfluttum, eða 715, sem og fjölmennasti hópurinn af þeim sem fluttust til landsins eða 930.
.