fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Áhrifamáttur Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 12. mars 2026 17:42

Konur njóta samverunnar á VOX Club Hilton Reykjavík Nordica.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA hefur á undanförnum árum haldið viðburði í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars á hvert. Daginn bar upp á sunnudagi í ár og því fögnuðu konur Alþjóðlegum baráttudegi saman föstudaginn 6. mars síðastliðinn.

Alþjóðanefnd FKA skipulagði viðburðinn í samstarfi við New Icelanders á VOX Club Hilton Reykjavík Nordica.

Steinunn, Fjóla Guðrún, Svala Hrönn, Sigfríð og Aðalheiður.
Veronika Guls og Jana Maren Óskarsdóttir.
Heiðrún Ósk, Paula Gould og Nathalia Bardales Tómasdóttir.

Áhrifamáttur Menntunarsjóðsins

Menntunarsjóður Mæðrastyrksnefndar veitir menntunarstyrki til tekjulágra kvenna, oft einstæðra mæðra, hvaðanæva af landinu. Sjóðurinn veitir konum námsstyrki til fagnáms, starfsréttindanáms, framhaldsskólanáms og háskólanáms og undanfarin ár hefur sjóðurinn veitt 700 styrki.

Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, ritari Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar var með kynningu á mögnuðum sjóði og Marly Gomes, formaður FKA New Icelanders deildi einlægri frásögn sem styrkþegi og ræddi mikilvægi menntunar og samstöðu kvenna.

„Áhrifamáttur Menntunarsjóðsins sést best þegar styrkþegar bæta líf sitt með aðstoð Menntunarsjóðsins sem fjölmörg dæmi erum um eins og sjá má,“ sagði Þórunn og leit stolt í áttina til Marly sem nú er að ljúka námi til löggildingar fasteigna- og skipasala með aðstoð sjóðsins. Marly hlaut styrk frá menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur til að stunda námið og má lesa nánar „Sér fram á bjarta fram­tíð fyrir börnin þökk sé styrknum“.

Marly Gomes og Þórunn Inga Ingjaldsdóttir
Stjórn Alþjóðanefndar frá vinstri: Jóhanna Lárusdóttir, Steingerður Hreinsdóttir, Helga Kristín Friðjónsdóttir og Sigrún Elísabeth Arnardóttir.
Linda Hilmarsdóttir og Harpa Rut Hilmarsdóttir.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Diljá minnist barnanna sem féllu frá langt fyrir aldur fram – „Þau voru öll dýrmætar manneskjur“

Diljá minnist barnanna sem féllu frá langt fyrir aldur fram – „Þau voru öll dýrmætar manneskjur“
Fréttir
Í gær

Þingmenn fengu kennslustund í íslensku eftir að hafa hneykslast á orðum Kristrúnar – „Vitið þið virkilega ekki hvað þetta þýðir?“

Þingmenn fengu kennslustund í íslensku eftir að hafa hneykslast á orðum Kristrúnar – „Vitið þið virkilega ekki hvað þetta þýðir?“