fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Erindi Heimis Más um stækkun hafnað

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. mars 2026 08:03

Heimir Már Pétursson. Mynd: Flokkur fólksins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erindi Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra og upplýsingafulltrúa Flokks fólksins, um stækkun raðhúss hans á Nýlendugötu í Reykjavík, var hafnað af skipulagsfulltrúa.

Erindið var tekið fyrir á fundi skipulagsfulltrúa 24. febrúar síðastliðinn:

„Lögð fram fyrirspurn Heimis Más Péturssonar, dags. 29. nóvember 2025, um hækkun og stækkun hússins á lóð nr. 19B við Nýlendugötu. Einnig eru lögð fram fylgigögn; skissa, yfirlitsmyndir af jarðhæð og 3. hæð og ljósmyndir. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. febrúar 2026. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 24. febrúar 2026.“

Heimir Már óskaði eftir að stækka húsið þannig að það næði þremur metrum framar og bæta við einni hæð. Kemur fram í umsögn skipulagsulltrúa að umrædd breyting samræmist ekki skipulagi.

Morgunblaðið greinir frá að Heimir Már hafi keypt húsið 20. desember árið 1999, hann hefur því átt húsið í 26 ár. Húsið er 47,8 fm á tveimur hæðum, reist árið 1928 og er á baklóð. Húsið er í raun einbýlishús, en skráð sem raðhús þar sem það er áfast við annað hús.

Mynd: fastinn.is.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Rannsókn á brunanum í Gufunesi lokið – Hleðslutæki líklegur sökudólgur

Rannsókn á brunanum í Gufunesi lokið – Hleðslutæki líklegur sökudólgur
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Rósa ráðin verkefnastýra Jafnvægisvogar FKA

Rósa ráðin verkefnastýra Jafnvægisvogar FKA
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Notkun gervigreindar breiðist út meðal íslenskra fyrirtækja en markviss innleiðing og stefnumótun sjaldgæfari

Notkun gervigreindar breiðist út meðal íslenskra fyrirtækja en markviss innleiðing og stefnumótun sjaldgæfari
Fréttir
Í gær

Dagur segir Miðflokkinn taka stöðu gegn almenningi – „Vaxtagreiðslur eru ótrúlega stór hluti af útgjöldum húseigenda“

Dagur segir Miðflokkinn taka stöðu gegn almenningi – „Vaxtagreiðslur eru ótrúlega stór hluti af útgjöldum húseigenda“
Fréttir
Í gær

Þarf að bera vitni með meintan kvalara sinn í dómsalnum – „Þú fucking þorir ekki að svara“

Þarf að bera vitni með meintan kvalara sinn í dómsalnum – „Þú fucking þorir ekki að svara“