fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Heitt í kolunum á Litla Hrauni – Kristleifur sló samfanga sinn í gólfið

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 2. mars 2026 17:30

Átökin snerust um lyf.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síbrotamaður á þrítugsaldri var fyrir helgi dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás í fangelsinu að Litla Hrauni. Barði hann samfanga sinn ítrekað í höfuðið, bæði standandi og eftir að hann féll í gólfið.

Maðurinn, Kristleifur Kristleifsson að nafni, var dæmdur á fimmtudag, 26. febrúar, í Héraðsdómi Suðurlands. Atvikið átti sér stað þann 4. nóvember árið 2024 fyrir utan klefa á Litla Hrauni.

Eins og segir í ákærunni hafi hann slegið samfanga sinn í höfuðið þannig að hann féll í gólfið. Síðan haldið áfram að berja hann í höfuðið með þeim afleiðingum að hann fékk glóðarauga á vinstra auga og sprungna vör.

DV hefur áður greint frá löngum brotaferli Kristleifs. Meðal annars dóma sem hann hefur hlotið fyrir líkamsárásir, sem og vopnalagabrot, fíkniefnabrot og fleira. Í eitt skipti fjallaði DV um mál þar sem hann var sakaður um að beina haglabyssu að þáverandi sambýliskonu sinni.

Sjá einnig:

Kristleifur beindi haglabyssu að sambýliskonu sinni þegar hún lá uppi í rúmi

Brotaþolinn í málinu á Litla Hrauni sagðist hafa rotast. Það er að hann hafi verið á gangi fyrir utan klefann sinn þegar Kristleifur hafi komið aftan að honum. Síðan hafi hann rankað við sér á gólfinu áður en hann var sendur til læknis. Hafi hann verið ásakaður um að stela Xanax lyfi en þeir höfðu þekkst í mörg ár.

Náðist árásin á öryggismyndavél en einnig voru vitni að atvikinu. Taldi því dómari yfir allan skynsamlegan vafa hafið að Kristleifur væri sekur í málinu.

Eins og áður segir hlaut hann 3 mánaða fangelsisdóm. Einnig þarf hann að greiða brotaþola 300 þúsund krónur í miskabætur sem og um 2 milljónir króna í sakar og málskostnað.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Fréttir
Í gær

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova