

Davíð lést á heimili sínu í gær, 79 ára að aldri, en óhætt er að segja að hann sé einn áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldissögunnar. Hann var borgarstjóri, forsætisráðherra, utanríkisráðherra og seðlabankastjóri og gegndi þar að auki embætti formanns Sjálfstæðisflokksins á árunum 1991 til 2005.
„Það eru þung og sorgleg tíðindi að Davíð Oddsson sé látinn. Með Davíð er horfinn af vettvangi einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu lýðveldisins og að mínu mati einn sá allra merkasti. Hann var leiðtogi af sjaldgæfri stærð, skýr í sýn, sterkur í sannfæringu og með hæfileika til að móta samfélagið með hugmyndum sínum og forystu,” segir Guðrún.
Hún segir að Davíð hafi mótað íslensk stjórnmál, efnahagslíf og þjóðmálaumræðu um áratuga skeið.
„Hann gegndi embætti forsætisráðherra á tíma sem margir telja mesta blómaskeið í lýðveldissögunni. Á þeim árum urðu miklar framfarir í íslensku samfélagi, efnahagslífið styrktist og trú fólks á framtíð landsins var sterk. Í þeirri vegferð var Davíð í lykilhlutverki.“
Hún segir að fyrir Sjálfstæðismenn hafi Davíð verið meira en stjórnmálamaður.
„Hann var leiðtogi sem mótaði heila kynslóð. Hann hafði sterka trú á Íslandi, á frelsi einstaklingsins, á dugnað fólksins í landinu og á getu þjóðarinnar til að standa á eigin fótum. Sú trú einkenndi verk hans og málflutning alla tíð.“
Guðrún segir að hvort sem menn hafi verið sammála honum eða ekki hafi enginn farið varhluta af áhrifum hans. Hann hafi skilið eftir sig djúp spor í sögu þjóðarinnar.
„Ég hitti Davíð nýverið og það verður mér minnisstætt hversu hlýlega hann tók á móti mér. Hann var jafn skarpur og jafn áhugasamur um stjórnmál heima og erlendis og alla tíð. Mínar innilegustu samúðarkveðjur fara til Ástríðar, fjölskyldu hans og ástvina.“