fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. febrúar 2026 13:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þingmenn og starfsfólk þingflokks Samfylkingarinnar lentu í kröppum dansi á ferðalagi sínu á Vestfirði í gær. Kjördæmavika er nú á Alþingi og hafa þingmenn verið á ferð og flugi.

Samfylkingin lagði sérstaka áherslu á Snæfellsnes og Vestfirði að þessu sinni.

Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingkona flokksins, segir frá því á Facebook-síðu sinni að í gær hafi sá hluti hópsins sem var á Snæfellsnesi ætlað að sameinast hópnum sem var á Ísafirði, en það fór ekki alveg samkvæmt áætlun.

„Eftir siglingu með Baldri þá kom í ljós að Dynjandisheiði var lokuð svo við tókum ákvörðun um að fara Djúpið eftir samtal við Vegagerðina sem sagði það ætti að ganga. Það fór þó ekki betur en svo að við lentum inn í skafli í Skötufirði sem varð til þess að við fengum að kynnast mikilvægum innviðum á Vestfjörðum, björgunarsveitinni Kofra sem kom okkur til bjargar. Ekki nóg með það, þá var Súðavíkurhlíðin lokuð þegar við vorum laus úr skaflinum. Þá var heimavarnarliðið hennar Örnu okkar á Ísafirði ræst út og siglt til Súðavíkur að sækja okkur,” segir Ása sem birtir myndir og myndbönd frá ævintýrinu.

Arna Lára Jónsdóttir, varaformaður þingflokksins, gerði slíkt hið sama á sinni síðu og má sjá báðar færslurnar neðst í fréttinni.

„Það má nú alveg hlæja af okkur þingmönnunum að lenda í þessu og fá á sama tíma þessa góðu innsýn inn í raunveruleika þeirra landsmanna sem búa við svona krefjandi aðstæður í sínu daglega lífi. Við vorum heppin að það var símasamband á þessum vegarkafla því víða er það gloppótt á þessum slóðum. Undir þessari hlíð sem við vorum stopp er líka oft snjóflóðahætta, rétt eins og í Súðavíkurhlíð sem lokar reglulega með tilheyrandi óþægindum og óöryggi.“

Ása Berglind segir að lokum að fulltrúar björgunarsveitarinnar Kofra hafi sagt þeim að bíllinn sem kom þeim til bjargar hafi í raun verið fjárfesting sem þau gátu ráðist í vegna gjafar sem sveitin fékk.

„Þau hafa líka nýlega fjárfest í bát sem hefur skipt miklu máli þegar fólk veikist í Súðavík og hlíðin lokuð. Það er gömul saga og ný að björgunarsveitir eru einn af okkar allra mikilvægustu innviðum og vil ég nota tækifærið og þakka Kofra fyrir dýrmæta aðstoð.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin