

Til að fá atvinnuleysisbætur þarf fólk að vera í virkri atvinnuleit og vera tilbúið að mæta í vinnumarkaðsúrræði hjá Vinnumálastofnun eða þiggja starf með stuttum fyrirvara. Það er hægt að boða lögmæt forföll en fólk verður þó að varast það að ganga of langt. Annars gæti fólk lent í því að missa bæturnar en slíkt átti sér stað í tilfelli manns sem Vinnumálastofnun taldi of veikan til að teljast í virkri atvinnuleit.
Málið endaði hjá úrskurðarnefnd velferðarmála sem staðfesti afgreiðslu Vinnumálastofnunar (VMST).
Maðurinn var ósáttur eftir að VMST tilkynnti að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið hafnað með vísan til þess að hann gæti ekki talist í virkri atvinnuleit.
Viðkomandi sótti fyrst um bætur í júní 2023. Fyrst fékk hann aðeins 50 prósenta bótarétt þar sem hann sagðist aðeins vera í leit að 50 prósenta starfi. Hann ákvað að leiðrétta þetta og sagðist vera til í fullt starf og fékk þá fullan bótarétt. Sumarið 2024 var hann enn á bótum og var þá beittur viðurlögum þar sem bótaréttur hans var tímabundið felldur niður eftir að hann skrópaði á námskeið.
Nokkrum mánuðum síðar var hann boðaður á hópfund hjá VMST en boðaður forföll þar sem hann var staddur erlendis. Hafði hann tilkynnt um ferðalagið áður til VMST og var því ekki beittur viðurlögum.
Í mars árið 2025 var hann boðaður í viðtal og tilkynnt að um skyldumætingu væri að ræða. Skömmu eftir fundarboðið tilkynnti maðurinn að hann væri veikur og sendi læknisvottorð því til sönnunar.
VMST reyndi aftur í júní að boða manninn í viðtal. Aftur var um skyldumætingu að ræða og aftur boðaði maðurinn forföll vegna veikinda og sendi vottorð.
Það sama gerðist svo í júlí, aftur boðaði hann forföll vegna veikinda og sendi vottorð.
Þá ákvað VMST að tilkynna manninum að greiðslur yrðu stöðvaðar vegna þess að óvíst væri hvort maðurinn væri í raun og veru í virkri atvinnuleit. Ákvað stofnunin í framhaldinu að synja honum um frekari greiðslur.
Maðurinn taldi þetta ósanngjarnt. Hann hefði boðað lögmæt forföll vegna veikinda, skilað inn vottorðum og tilkynnt um ferðalög í samræmi við reglur. Fjarvistir hans væru vegna tímabundinna veikinda og hann fullfær um atvinnuleit.
Vinnumálastofnun rakti að maðurinn hefði ítrekað brugðist við boðun í vinnumarkaðsúrræði með því að tilkynna veikindi. Hann tilkynnti veikindin sama dag og honum barst fundarboð og skilaði í öllum tilvikum læknisvottorðum sem ættu við um tímabil aftur í tímann. Vottorðin voru gefin út í gegnum vef Heilsuveru og af þeim mátti ráða að engin læknisskoðun hefði farið fram til að staðfesta veikindi. Mat VMST væri að maðurinn hefði annaðhvort ekki vilja eða getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem honum stóðu til boða.
Úrskurðarnefndin rakti að fólk á atvinnuleysisbótum þurfi að hafa vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara. Annars geti viðkomandi ekki talist vera í virkri atvinnuleit. Hér hafi maðurinn í fjórgang verið boðaður í vinnumarkaðsúrræði og í öll skiptin hafi hann boðað forföll, einu sinni vegna þess að hann var staddur erlendis og í þrígang vegna veikinda. Samkvæmt þeim vottorðum sem hann lagði fram hafði hann verið ófær um að sækja vinnu eða skóla vegna veikinda á nánar tilgreindum tímabilum. Þar með hafði maðurinn ekki heilsu til að taka starfi eða taka þátt í virkum vinnumarkaðsaðgerðum og ekki verður séð að hann hafi vilja eða getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara eins og áskilið er í lögum. Þar með var ákvörðun VMST staðfest.
Úrskurðurinn féll þann 16. október á síðasta ári en var birtur í gær.