fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Margrét fer fram á endurflutning á máli sínu þar sem dómsuppkvaðning er komin fram yfir tímafrest

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 17:24

Margrét Friðriksdóttir rétt fyrir aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjaness. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögmaður Margrétar Friðriksdóttur, Hilmar Garðar Þorsteinsson, hefur sent formlega beiðni til Héraðsdóms Reykjaness og Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að ærumeiðingarmál hins síðarnefnda gegn Margréti verði endurflutt.

Margrét var ákærð fyrir ærumeiðingar gegn Barböru Björnsdóttur dómara, eins og ítarlega hefur verið greint frá:

Réttarhöld hafin yfir Möggu Frikka – Ákærð fyrir ummæli um dómara

Aðalmeðferð í málinu var föstudaginn 16. janúar við Héraðsdóm Reykjaness. Dómsuppkvaðningu hefur verið frestað í þrígang vegna veikinda dómarans í málinu, Jónasar Jóhannssonar. Hann mun hins vegar vera aftur kominn til starfa en ekki hefur verið skráð ný dagsetning fyrir dómsuppkvaðninguna síðan síðasta frestun átti sér stað.

Föstudaginn 13. febrúar voru liðnar fjórar vikur frá aðalmeðferðinni en það er sá lögbundni hámarkstími sem líða má frá aðalmeðferð og þar til dómur er kveðinn upp. Í 184. grein laga um meðferð sakamála segir:

„Dómur skal kveðinn upp svo fljótt sem unnt er. Hafi dómur ekki verið kveðinn upp í máli sem var munnlega flutt innan fjögurra vikna frá því að það var dómtekið skal það flutt að nýju nema dómari og aðilar telji það óþarft.“

Rétt túlkun þessar greinar mun vera sú að eftir að fjögurra vikna fresturinn er liðinn geti hvor málsaðili fyrir sig krafist endurflutnings málsins.

Margrét segir í samtali við DV að við endurflutning málsins verði kölluð fyrir ný vitni í ljósi nýrra upplýsinga sem komu fram við aðalmeðferð málsins.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”