fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Lögreglumaður ákærður fyrir að fara ólöglega inn í íbúð og leita í henni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 11:30

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært lögreglumann fyrir tvö brot í opinberu starfi. Meint brot voru framin sumarið 2025.

Annars vegar er lögreglumaðurinn sakaður um að hafa mánudaginn 21. júlí opnað útidyrahurð efri hæðar að tilteknu húsnæði, með lykli sem hann lagði hald á ólöglega, og farið inn án samþykkis eigenda eða leigutaka eða úrskurðar dómara, og þannig ekki gætt lögmætra aðferða við leit.

Í öðru lagi er lögreglumaðurinn sakaður um að hafa miðvikudaginn 23. júlí farið inn í tiltekna íbúð í fjölbýli án samþykkis eigenda eða úrskurðar dómara og hafið þar leit og þannig ekki gætt lögmætra  aðferða við beitingu rannsóknaraðgerðar.

Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur í gær, mánudaginn 16. febrúar. Réttarhöld í málinu eru lokuð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“