fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Frumvarp um afturköllun verndar samþykkt einróma – „Afbrot hafa afleiðingar“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. febrúar 2026 18:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga var samþykkt einróma á Alþingi í dag. Stjórnvöldum verður því heimilt að afturkalla alþjóðlega vernd þegar útlendingur hefur framið alvarleg eða ítrekuð brot eða ef ástæður eru taldar fyrir því að útlendingur sé hættulegur öryggi ríkisins.

Jafnframt er með frumvarpinu afnumin séríslensk regla um að umsækjendur um alþjóðlega vernd fái sjálfkrafa dvalarleyfi vegna tafa á málsmeðferð.

„Afbrot hafa afleiðingar. Það er lágmarkskrafa að þeir sem fá alþjóðlega vernd hér á landi virði lög og ógni ekki öryggi samfélagsins. Við ætlum ekki að líða að einstaklingar sem fremja alvarleg eða ítrekuð afbrot njóti áfram verndar. Með þessum breytingum setjum við skýr mörk og stöndum vörð um öryggi almennings,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Meginmarkmið frumvarpsins er að hér á landi séu ekki einstaklingar með alþjóðlega vernd sem hafa framið alvarleg afbrot, teljast ógn við öryggi ríkisins eða ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi með ítrekuðum brotum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”