fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Óðinn Svan var ekki lengi verkefnalaus – Þetta tekur við eftir að hann hætti á RÚV

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 13. febrúar 2026 17:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn Óðinn Svan Óðinsson sagði í dag frá því að hann hefði sagt upp starfi sínu á RÚV eftir um sjö ára starf fyrir stofnunina. Þetta kom fram í færslu hans kl. 15.29 á Facebook. 

Í viðtali við Vísi um hvað tæki við sagði Óðinn Svan orðrétt: „Maður getur ekki verið atvinnulaus lengi ef maður er með þrjú börn.“

Og það reyndist orð að sönnu því klukkustund síðar birtist frétt á Akureyri.net um að Óðinn Svan myndi skipa 1. sæti L-listann á Akureyri í komandi sveitarstjórnarkosningum.

„Ég er Akureyringur í húð og hár og þekki það á eigin skinni hversu gott er að búa á Akureyri og ala upp börn í bænum. En það þarf að passa að bærinn okkar haldi áfram að vaxa og dafna og þess vegna langar mig að bjóða fram krafta mín í það verkefni,“ sagði Óðinn við Akureyri.net. „Í störfum mínum hjá RÚV hef ég aflað mér víðtækrar reynslu af samfélagsmálum og stjórnsýslu og vil nýta þá reynslu í þágu heimabæjarins.“

L-listinn er í meirihlutasamstarfi í dag með þrjá bæjarfulltrúa af 11 í bæjarstjórn. Núverandi oddviti listans, Halla Björk Reynisdóttir, gefur ekki kost á sér áfram.

L-listinn hefur verið í meirihluta í bæjarstjórn síðustu 16 ár; hlaut sögulega kosningu 2010 þegar hann fékk sex bæjarfulltrúa og hreinan meirihluta, sem hafði aldrei gerst í bæjarstjórn Akureyrar. Frá 2014 hefur L-listinn verið í samstarfi við aðra í meirihluta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”