fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Mikill órói í sveitarstjórn Vopnafjarðar – Sveitarstjórinn látinn fara

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 09:00

Frá Vopnafirði. Myndin tengist ekki fréttinni beint. Mynd: DV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vegna samstarfserfiðleika í sveitarstjórn og á skrifstofu sveitarfélagsins var kallaður til mannauðsráðgjafi á Vopnafirði. Daginn eftir að hann gerði hreppsráði Vopnafjarðarhrepps grein fyrir störfum sínum var gengið frá starfslokasamningi við sveitarstjórann, Valdimar O. Hermannsson, sem var samþykktur samhljóða á sveitarstjórnarfundi.

Morgunblaðið greinir frá þessu.

Tveir listar eru í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps, B-listi Framsóknarflokks og óháðra er í meirihluta og H-listi, Vopnfjarðarlistinn, er í minnihluta.  Axel Erni Sveinbjörnssyni, oddvita B-listans, var falið að ganga frá starfslokasamningnum og í framhaldi af því sagði Axel af sér. Í samtali við Morgunblaðið sagði hann þá ákvörðun vera tekna af persónulegum ástæðum.

Ósætti hefur verið í sveitarstjórn Vopnafjarðar og hafa þrír sveitarstjórar látið af störfum á síðustu tveimur kjörtímabilum. Fjárhagsstaða sveitarfélagsins er undir eftirliti eftirlitsnefndar sveitarfélaga.

Samkvæmt frétt Morgunblaðsins er aðaldeiluefnið lenging á löndunarkanti en sveitarfélagið hefur skuldsett sig fyrir 400 milljónir vegna verkefnisins. Bitni það á öðrum verkefnum sem sitji á hakanum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“