

Minningarstund var haldin á sunnudag fyrir Kjartan Sævar Óttarsson, 51 árs málaliða í Úkraínuher. Kjartan lét lífið í drónaárás Rússa í Úkraínu skömmu fyrir áramót. Hann var þá nýgenginn til liðs við Úkraínuher og hafði verið við heræfingar í tæplega þrjár vikur áður en hann lést.
Greint er frá minningarstundinni í Facebookhópnum Ísland fyrir Úkraínu, en minningarstundin fór fram í Maríukirkju og var fjölskyldu Kjartans boðið til stundarinnar.

„Í lok desember átti sér stað hörmulegur atburður þar sem íslenskur maður, Kjartan Sævar Óttarsson, lét lífið í stríði. Hann var 51 árs að aldri og hafði dvalið í Úkraínu í tæpan mánuð þegar hann féll, líkt og svo margir hermenn í þessu ósanngjarna og hræðilega stríði.
Okkur í úkraínska samfélaginu þykir þetta afar sárt og því skipulögðum við úkraínska samfélag minningarstund honum til heiðurs. Fjölskyldu hans var boðið á sunnudaginn 8. febrúar í Maríukirkju í Seljahverfi, þar sem úkraínska samfélagið hittist reglulega á sunnudögum til bæna, samveru og samtals, þar sem fólk deilir bæði sorg og gleði. Prestur okkar, séra Mykhajlo, heldur utan um þessar bænastundir og samverustundir.
Á minningarstundinni fluttum við þakkarorð og minningar, bænir og tónlist og færðum fjölskyldu Kjartans blóm, kerti og kort sem tákn um samúð okkar og þakklæti.
Að loknum formlegum hluta minningarstundarinnar hittumst við í samkomuhúsi kirkjunnar, þar sem við kynntumst dóttur Kjartans og systkinum hans og áttum saman hlý og einlæg samtöl. Fulltrúar úkraínska samfélagsins fluttu fjölskyldunni samúðarkveðjur, þakkarorð og orð stuðnings.“