fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Trump fordæmdur fyrir að birta rasískt gervigreindarmyndband – Obama-hjónin birtust í líki apa

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. febrúar 2026 14:30

Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að deila rasísku myndbandi á síðu sinni á samfélagsmiðlinum, Truth Social. Um var að ræða eins mínútna langt myndband þar sem þeirri samsæriskenningu var haldið á lofti að demókratar hefðu „stolið“ forsetakosningunum árið 2020, sem er Trump verulega hugleikin.

Undir lok myndbandsins sjást síðan andlit Obama-hjónanna á gervigreindargerðum öpum í nokkrar sekúndur við undirleik lagsins „The Lion Sleeps Tonight“ með hljómsveitinni The Tokens.

Færslan hefur valdið mikilli reiði. The Guardian hefur tekið saman ýmis viðbrögð þekktra einstaklinga.

Ben Rhodes, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Obama, brást til að mynda við færslunni með því að segja að Trump væri „blettur á sögu Bandaríkjanna“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“