

Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum í gegnum samskiptaforritið Snapchat. Brotaþolar í málinu voru átta talsins, en í reifun dóms kemur fram að maðurinn hafi jafnvel verið í samskiptum við hundruð barna í gegnum forritið. Brotaþolar voru á aldrinum 11-13 ára þegar brotin áttu sér stað. Maðurinn þarf þó aðeins að afplána 3 mánuði óskilorðsbundið en 12 mánuðir eru skilorðsbundnir til tveggja ára.
Dómur féll í gær í Héraðsdómi Reykjaness, en fram kemur í dómi að maðurinn hafi hitt suma brotaþola sinna í Hamraborg þar sem honum finnst „gott að hanga“, eins og hann segir sjálfur í skilaboðum til eins brotaþolans.
Dómurinn er langur og er þar gerð grein fyrir fjölda skilaboða sem hann sendi á stúlkurnar. Hér eru nokkur dæmi:
Framangreint eru bara örfá dæmi. Skilaboðin eru mörg kynferðisleg þar sem ákærði talar um kynfæri sín, kynfæri stúlknanna, spyr þær út í kynlífsreynslu og stingur upp á því að þau hittist, jafnvel þó að ekkert kynferðislegt muni eiga sér stað.
Málið kom upp eftir að lögregla fékk tilkynningu um yfirstandandi eignaspjöll á bifreið. Í framhaldinu hitti lögregla tvo brotaþola mannsins sem greindu frá samskiptum sínum við hann og lýstu því hvernig hann viðhafði kynferðislegt tal við þær og hann hafði útvegað þeim áfengi og veip. Í framhaldinu var framkvæmd húsleit hjá manninum og við skoðun á Snapchat kom í ljós að hann hafði verið í óviðeigandi samskiptum við fjölda stúlkna.
Maðurinn neitaði sök í málinu en viðurkenndi að hafa vitað hversu ungar stúlkurnar voru, þ.e. um 12-13 ára þegar hann var í samskiptum við þær. Hann sagðist hafa verið meira og minna rúmliggjandi á þessum tíma og verið einmana. Aðeins hafi verið um að ræða spjall og samskiptin hafi ekki falið í sér væntingar um frekari samskipti við brotaþola. Maðurinn hafi ekki ætlað að verða kærasti stúlknanna og ekki verið að leitast eftir kynlífi með þeim. Hann hafi hitt sex af átta brotaþolum en sagðist ekki hafa kynferðislegan áhuga á börnum.
„Ákærði sagði að sum skilaboð hans til brotaþola væru fyrir neðan allar hellur og lágkúruleg og hann skammist sín fyrir þau. Skilaboðin hafi hins vegar ekki verið kynferðisleg og ekki hafi verið um áreitni af hans hálfu að ræða. Af hans hálfu hafi verið um grín og kaldhæðni að ræða sem eftir á sé ekki sniðugt. Hann hafi engan áhuga haft á kynlífi með brotaþolum og alls ekki meint allt það sem hann hafi sagt við stúlkurnar. Það væri hins vegar í lagi að tala við börn og hann hafi aldrei skoðað barnaníð enda ekkert slíkt fundist á þeim raftækjum sem lögregla hafi lagt hald á við húsleit á heimili hans.“
Hvað varðaði ákæruliðina bar maðurinn því við að honum hafi ekki verið alvara með kynferðislegu tali sem hafi ýmist verið grín eða kaldhæðni. Hann hafi aðeins ætlað að valdefna stúlkurnar sem sumar hafi glímt við lágt sjálfsmat.
Dómari tók fram að grín gæti ekki réttlætt öll skilaboðin, enda slíkt aldrei viðeigandi í samskiptum fullorðinna við börn:
„Ákærði var um fertugt þegar hann var í samskiptum við brotaþola og öll ummæli frá honum til barna sem skilja og túlka má á kynferðislegan hátt voru algerlega óviðeigandi enda voru brotaþolar, sem voru börn að aldri, berskjaldaðar fyrir slíkum skilaboðum. Ákærði getur ekki réttlætt öll óviðeigandi ummæli sem hann hafði við brotaþola með því að þau hafi verið grín eða kaldhæðni af hans hálfu. Hvað það varðar verður einnig að hafa í huga að brotaþolar voru börn sem eflaust leggja ekki sama skilning í grín og fullorðnir, hvað þá að geta greint í öllum tilvikum kaldhæðni frá eðlilegum ummælum fullorðins karlmanns. Þá er kynferðislegt grín aldrei viðeigandi í samskiptum fullorðinna við börn.“
Af lýsingum brotaþola mátti ráða að maðurinn hafi verið orðinn nokkuð þekktur meðal unglingsstúlkna á tímabilinu sem um ræddi, 2021-2023. Hann hafi verið með viðurnefnið perri. Sumar stúlkurnar höfðu leitast eftir samskiptum við hann eftir að þær fréttu að hann væri að kaupa veip handa krökkum.
Eins og áður segir þá var maðurinn sakfelldur fyrir brot sín en dómara þótti hann þó ekki hafa gerst sekur um tælingarbrot eins og því er lýst í 4. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga: „Hver sem með samskiptum á netinu, annarri upplýsinga- eða fjarskiptatækni eða með öðrum hætti mælir sér mót við barn yngra en 15 ára í því skyni að hafa við barnið samræði eða önnur kynferðismök eða til að áreita það kynferðislega á annan hátt skal sæta fangelsi allt að 2 árum.“
Því var hann sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni gegn barni skv. 2. mgr. 202. gr.
Dómari tók fram að það hafi orðið verulegar tafir á málinu og ákæra ekki verið gefin út fyrr en síðla árs 2025. Verði manninum ekki um það kennt. Því var talið rétt að skilorðsbinda refsinguna að mestu, en aðeins þrír mánuðir af fimmtán eru óskilorðsbundnir. Hann þarf svo að greiða sex þolendum miskabætur, þær eru á bilinu 400-700 þúsund krónur.