fbpx
Fimmtudagur 05.febrúar 2026
Fréttir

Margrét Marteins komin í nýtt starf

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 08:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Marteinsdóttir hefur verið ráðin sem fulltrúi Dýraverndarsambands Íslands (DÍS) og hefur hún þegar hafið störf.

Dýraverndarsambandið er elsta dýravelferðarfélag landsins, stofnað 1914 og hefur verið leiðandi í baráttunni fyrir velferð og réttindum dýra á Íslandi. Dýraverndarsambandið beitir sér fyrir betri löggjöf og bættu eftirliti með velferð dýra, ábyrgu dýrahaldi og leggur áherslu á að efla opinbera umræðu um dýravelferð.

Í tilkynningu frá sambandinu kemur fram að Margrét hafi víðtæka reynslu af fjölmiðlum, starfaði á RÚV í 16 ár, sem varafréttastjóri sjónvarps- og útvarps og sem dagskrárstjóri Rásar 1 og Rásar 2.

Hún var um tíma yfirmaður íþróttadeildar RÚV og stýrði dægurmáladeild fréttastofunnar þar sem hún hafði yfirumsjón með fimm útvarpsþáttum: Hádegisútvarpinu, Morgun- og Síðdegisútvarpinu, Speglinum og Vikulokunum.

Undanfarin ár hefur Margrét starfað sem rannsóknarblaðamaður á Stundinni og Heimildinni og hefur þar m.a. fjallað um dýravelferðar- og umhverfismál. Hún hlaut blaðamannaverðlaun árið 2019 ásamt þremur blaðamönnum fyrir umfjöllun ársins um loftslagsbreytingar og árið 2023 fyrir viðtal ársins við Gyrði Elíasson skáld.

Árið 2014 skrifaði Margrét bókina Vakandi veröld – ástaróður sem er handbók með leiðbeiningum fyrir fólk um hvernig er hægt að lifa í sátt við náttúruna í hringiðu neyslusamfélagsins.

„Það er okkur mikill styrkur að fá Margréti til liðs við félagið og hlökkum við til samstarfsins. Dýraverndarsambandið hefur verið í miklum vexti undanfarin ár og ég er sannfærð um að framlag hennar muni efla félagið enn frekar í baráttunni fyrir velferð dýra í landinu,‘ segir Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands, í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Landsréttur fær skömm í hattinn frá Hæstarétti í máli flugumferðarstjóra – Byggðu niðurstöðu á forsendum sem hvorugur málsaðili tefldi fram

Landsréttur fær skömm í hattinn frá Hæstarétti í máli flugumferðarstjóra – Byggðu niðurstöðu á forsendum sem hvorugur málsaðili tefldi fram
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Dæmi þess að unglingar í Norður-Kóreu séu teknir af lífi vegna Netflix-gláps

Dæmi þess að unglingar í Norður-Kóreu séu teknir af lífi vegna Netflix-gláps