

Greint er frá þessu á vef RÚV og herma heimildir miðilsins að um sé að ræða tvær íslenskar konur. Þá segir að hin látna hafi verið kona á tíræðisaldri.
Í frétt RÚV er haft eftir Jóni Gunnari Þórhallssyni yfirlögregluþjóni að farið hafi verið fram á gæsluvarðhald fram á föstudag á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Þá segir Jón Gunnar að verið sé að rannsaka andlátið og hvort það hafi átt sér stað með saknæmum hætti. Konan sem um ræðir lést í síðustu viku en konurnar sem um ræðir voru handteknar í gær.