fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hlegið í þingsal þegar „Indriði“ mætti í pontu – „Hver á að laga það? Á ég að gera það?“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 14:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Gnarr er þingmaður Viðreisnar en landsmenn þekkja hann úr mörgum öðrum hlutverkum, þar með talið hlutverki Indriða sem hann lék í Fóstbræðrum með eftirminnilegum hætti, en Indriði sá hafði allt á hornum sér.

Jón flutti í dag ræðu á Alþingi undir liðnum Störf þingsins og ákvað að gera tækjamál og -búnað þingsals að umtalsefni.

„Frú forseti. Mig langar að gera að umtalsefni mínu tæknimál og tækjabúnað í þingsal. Það er öllum þingmönnum og starfsfólki ljóst að tækjabúnaður hér er kominn vel til ára sinna og á það til að virka ekki, t.d. í atkvæðagreiðslum verður oft vandræðagangur vegna þess að hnappakerfið virkar ekki.“

Þegar Jón hélt svo áfram fór viðstöddum þingmönnum að gruna, með tilheyrandi hlátri, að sjálfur Indriði væri mættur í pontu.

„Svo á þetta ljós hérna til að blikka allt í einu og trufla mann í einhverri ógleymanlegri ræðu og það oft á einhverjum tæknilegum misskilningi byggt. Ég velti þessu fyrir mér af því að ég er nýkominn frá Færeyjum og skoðaði þar þingsalinn í lögþinginu og það er miklu nútímalegri tækjabúnaður þar en hér. Ástæða þess að ég nefni þetta er sú að ég sé að þetta hefur oft valdið óþægindum og misskilningi. Fólk á stundum erfitt með að fylgjast með dagskránni hérna.“

Nefndi hann sem dæmi umræðuna um fjárlögin en þá hafi Jón stigið upp í pontu undir vitlausum lið þar sem hann misskildi hvað væri verið að tala um.

„Ég er heyrnarskertur og er með alvarlega heyrnarskerðingu. Ég heyri stundum ekki það sem hæstvirtur forseti segir og á stundum erfitt með að átta mig á dagskránni út af því. Þannig að ég velti fyrir mér: Nú er t.d. hægt að fá kerfi eins og Hearing Loop og Teleslinga sem eru notuð víða á fundum þar sem heyrnarskert fólk getur tengst kerfi í gegnum Bluetooth. Svo finnst mér allt í lagi að það mætti vera hérna skjár, eins og er hérna frammi, þar sem kemur fram um hvað er verið að ræða og hver mælendaskráin er.“

Þá hringdi forseti til að minna Jón á ræðutímann svo hann ákvað að ljúka ræðu sinni með eftirfarandi hætti sem uppskar enn meiri hlátur í þingsal: „Svo er alltaf eitthvert hljóð í ofnunum hérna frammi, eitthvað bank. Það er eins og þeir séu fullir af lofti. Hver á að laga það? Á ég að gera það? Ég hef lokið máli mínu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”