
Kokkurinn Benedikt Waage Reynisson varð fyrir því á mánudagskvöld að brotist var inn í bíl hans við götuna Neðstaleiti og þaðan stolið verðmætum að fjárhæð um 740 þúsund krónur.
Benedikt starfar sem kokkur og nauðsynleg vinnutæki hans voru í bílnum og þjófurinn hafði þau á brott með sér: Kokkahnífar, kokkaföt, kokkaskór, og margt annað líka.
Benedikt greinir frá málinu í Facebook-færslu sem móðir hans, Kristín Waage deilir, en Nútíminn hefur einnig fjallað um málið.
Innbrotið í bílinn átti sér stað á mánudagskvöld, líklega á milli kl. 18:30 og 21:00. Benedikt telur líklegt að þjófurinn gengið á milli bíla og valið sér skotmark. Bent er á að vegna þess hve mikið magn var stolið hafi viðkomandi ekki getað borið dótið langt í einni ferð. Því sé líklegt að einhver í hverfinu hafi orðið var við grunsamlegan mann á ferðinni þetta kvöld. „Grunsamlegur maður hlýtur að hafa sést á ferðinni,“ skrifar hann.
Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu og segist Benedikt vera í góðu sambandi við hana. Hann hefur einnig farið yfir upptökur úr myndavélum í nágrenninu en óskar eftir vitnum sem gætu hafa séð eitthvað óvenjulegt við Neðstaleiti þetta kvöld.
Kristín Waage hvetur fólk sem kann að hafa upplýsingar um málið til að hafa samband, í þeirri von í að verðmætin verði endurheimt. Hún sagði í stuttu símtali við DV í morgun að þýfið hafi ekki verið endurheimt enn sem komið er.
Hnífarnir hans Benedikts eru nú komnir aftur í hans hendur. Kristín segir í samtali við DV:
„Fréttaflutningurinn hafði þau áhrif að einstaklingur sem var með töskuna hafði samband og vildi skila henni.“