fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

„Nú er ég hræddur um að einhver hafi fengið sleggjuna í trýnið”

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 09:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir að nýjar verðbólgutölur Hagstofunnar í morgun séu mikil vonbrigði og gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega.

Verðbólgan hækkaði um 0,38% á milli mánaða og er ársverðbólga nú 5,2%.

Ólafur segir í færslu á Facebook-síðu sinni að þegar frétt Hagstofunnar sé lesin blasi við að ríkisstjórnin – sér í lagi fjármálaráðherrann og stjórnarmeirihlutinn á Alþingi – hafi gert rækilega í nytina sína.

„Nettóáhrifin af breytingum á gjaldtöku af ökutækjum (kílómetragjald, breyting á vörugjöldum og niðurfelling rafbílastyrks) eru 0,61%. Janúarútsölur og lækkun á flugfargjöldum ná ekki að vega þessar hækkanir upp,“ segir hann.

Ólafur rifjar svo upp að bæði í verkalýðshreyfingu og atvinnulífi hafi maður gengið undir manns hönd að vara stjórnvöld við varðandi bæði kílómetragjaldið og breytingarnar á vörugjöldum á ökutækjum.

„Bent var á að málin væru illa unnin, útreikningar fjármálaráðuneytisins ófullnægjandi og verðlagsáhrifin óviss. Nú sitjum við uppi með niðurstöðu þar sem það eru aðgerðir ríkisstjórnarinnar, sem ætlaði að berja niður verðbólgu og vexti, sem eru helzti verðbólguvaldurinn! Þættir sem eru ekki utanaðkomandi heldur sem stjórnvöld hefðu átt að hafa fulla stjórn á. Náist ekki að vinda ofan af þróuninni þegar líður á árið, getur það stefnt kjarasamningunum á almenna vinnumarkaðnum í hættu,“ segir Ólafur sem endar færslu sína á þessum orðum:

„Nú er ég hræddur um að einhver hafi fengið sleggjuna í trýnið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”