fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Gagnrýna rannsókn lögreglu á alvarlegri líkamsárás á Þjóðhátíð

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 08:00

Þjóðhátíð 2025. Mynd: Bent Marinósson. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti en árásin átti sér stað á Þjóðhátíð árið áður.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nefnd um eftirlit með lögreglu gagnrýnir hluta rannsóknar lögreglunnar í Vestmannaeyjum á alvarlegri líkamsárás sem framin var á Þjóðhátíð árið 2024. Nefndin segir ljóst að upphaf rannsóknarinnar hafi verið annmörkum háð en er ekki tilbúin til að fjalla um rannsóknina að öllu leyti þar sem henni er ekki lokið.

Lögmaður þolanda árásarinnar kvartaði til nefndarinnar í september 2025. Í kvörtuninni voru gerðar athugasemdir við meintar ámælisverðar starfsaðferðir starfsmanna lögreglunnar í Vestmannaeyjum við rannsókn og málsmeðferð á alvarlegri líkamsárás sem þolandinn varð fyrir þann 4. ágúst 2024 en sá dagur var um Verslunarmannahelgina þetta ár. Í fyrsta lagi voru gerðar athugasemdir við að viðbrögð lögreglu í kjölfar og við rannsókn árásarinnar hafi verið ófullnægjandi. Í öðru lagi taldi þolandinn að meðferð málsins hafi dregist óeðlilega án fullnægjandi skýringa. Í þriðja lagi taldi þolandinn að samskipti við lögreglu hafi verið ófullnægjandi og ekki í samræmi við lög um meðferð sakamála.

Engin skýrsla

Lögreglan í Vestmannaeyjum sendi nefndinni öll gögn málsins auk upptöku úr búkmyndavél lögreglumanns. Í svari lögreglunnar kom meðal annars fram að þegar tilkynning barst um málið hafi vinur þolandans lýst atvikum að því er virtist eftir honum. Hafi hann ekki séð atvikið sjálfur. Vinurinn hafi hringt í þolandann, sem hafi lýst atvikum. Þetta hafi verið um klukkan tvö aðfaranótt sunnudagsins 4. ágúst 2024 þegar ókunnugur maður hafi skallað hann og kýlt hann ítrekað í höfuðið. Þolandinn lýsti útliti meints geranda. Þessar lýsingar hafi hann gefið eftir að hann taldi sig hafa séð meintan geranda á tjaldsvæðinu í Eimskipshöllinni og tekið af honum myndband. Hafi vinur hans sýnt lögreglu myndbandið og bent á meintan geranda.

Svör lögreglu eru frá því í október 2025 en í því þeim kom fram að enginn sakborningur hafi verið skráður í málinu og enginn skýrsla tekin af meintum geranda. Það sé þó enn hægt að gera það, þar sem málið sé enn til rannsóknar.

Slæmt upphaf en ekki búið

Nefnd um eftirlit með lögreglu segir í sinni niðurstöðu um kvörtun þolandans að gögn málsins beri með sér að hann hafi orðið fyrir tilhæfulausri og alvarlegri líkamsárás sem beri að rannsaka í samræmi við lög um rannsókn sakamála.

Nefndin telur að upphafsstig rannsóknarinnar hafi verið annmörkum háð. Þar sem rannsókn málsins sé hins vegar enn ólokið sé þó ekki að svo stöddu hægt að leggja mat á hvort unnt sé að bæta þar úr. Þar af leiðandi telur nefndin ekki tilefni til að aðhafast frekar vegna kvörtunarinnar að sinni. Telji þolandinn tilefni til að beina nýrri kvörtun til nefndarinnar að rannsókn lokinni muni hún verða tekin til nýrrar afgreiðslu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”