fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hafnarfjarðarmálið þingfest: Verjandinn mætti en Helgi Bjartur ekki

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 10:16

Oddgeir Einarsson lögmaður fyrir þingfestingu í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þingfesting var í morgun í Héraðsdómi Reykjaness í Hafnarfjarðarmálinu svokallaða. Þar er Helgi Bjartur Þorvarðarson, maður á fimmtugsaldri, ákærður fyrir húsbrot og kynferðisbrot gegn tíu ára dreng, aðfaranótt 14. september árið 2025.

Helgi Bjartur mætti ekki sjálfur við þingfestinguna en verjandi hans, Oddgeir Einarsson lögmaður, var viðstaddur þingfestinguna. Helgi Bjartur, sem situr í gæsluvarðhaldi, brást við ákæru í gegnum fjarfundabúnað.

Sjá einnig: Helgi Bjartur ákærður fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði

Þinghöld í málinu eru fyrir luktum dyrum en Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari í málinu, greindi frá því í samtali við DV að Helgi Bjartur neiti sök í málinu. Ekki liggur fyrir hvað ákæruvaldið krefst þungrar refsingar yfir honum.

Helgi Bjartur hefur borið við minnisleysi um atburðir næturinnar er meint brot var framið. Í yfirlýsingu til fjölmiðla frá 12. janúar lýsti hann sig saklausn af ákæru enda hafi hann það ekki í sér að fremja slíkt brot. Brotaþoli í málinu hefur hins vegar veitt skýra lýsingu á meintu broti Helga Bjarts gegn honum auk þess sem lífsýni úr Helga Bjarti greindist í nærfötum brotaþola.

Karl Ingi saksóknari upplýsti ennfremur að aðalmeðferð í málinu verður 23. mars næstkomandi. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir Helga Bjarti rennur út þann 6. febrúar. Búast má fastlega við því að héraðssaksóknari fari fram á framlengingu gæsluvarðhalds.

Uppfært kl. 11:25:

Samkvæmt heimildum DV játaði Helgi Bjartur vændiskaup við þingfestinguna. Hann neitaði hins ákæru um húsbrot og kynferðisbrot gegn drengnum. Í tveimur af þremur yfirheyrslum lögreglu í haust kannaðist Helgi Bjartur við að hafa farið inn á heimili fjölskyldunnar í Hafnarfirði. Hann neitaði því hins vegar í þriðju yfirheyrslu.

Sjá einnig: Helgi keypti þjónustu vændiskonu sama kvöld – Síminn hans hefur ekki fundist

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart