fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Harmleikurinn í Sviss: Eigendur barsins sem fuðraði upp og kostaði 40 manns lífið kenna ungri þjónustustúlku um

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 20:30

Jacques og Jessica Moretti voru eigendur staðarins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eigendur svissneska næturklúbbsins Constellation, þar sem 40 manns, aðallega ungt fólk,  létust í eldsvoða á nýársnótt, hafa varpað ábyrgðinni á hörmungunum alfarið yfir á ungt starfsfólk staðarins.  Jacques Moretti, 49 ára, og eiginkona hans Jessica Moretti, 40 ára, sem sæta rannsókn og eiga yfir höfði sér fangelsisdóm, segja eldinn hafa kviknað vegna gjörða þjónustustúlku sem klifraði upp á axlir samstarfsmanns og kveikti á stjörnuljósum ofan á kampavínsflöskum.

Umrædd þjónustustúlka, hin 24 ára gamla Cyane Panine lét lífið í eldinum. Hún var með hjálm á höfði þegar hún veifaði stjörnuljósunum og sá ekki þegar neistarnir læstust í mjög eldfimu froðuefni í lofti barsins sem varð til þess að gríðarlegt eldhaf braust út á skömmum tíma.

Cyane Panine

Moretti-hjónin sögðu Panine hafa alfarið haft frumkvæðið að áðurnefndri uppákomu og þau hafi ekki áttað sig á þvi að hætta væri á ferðum.

Fjölskylda Panine hefur brugðist ókvæða við þessari tilraun Moretti-hjónanna til þess að skella skuldinni á hina látnu. Segja þau Panine hafa verið að framfylgja fyrirmælum stjórnenda um að skapa stemmingu á staðnum og hafa önnur vitni, sem lifðu hildarleikinn af, stutt þá frásögn.

Panine á öxlum samstarfsfélaga rétt áður en ósköpin dundu yfir

Þá hafa hjónin einnig kennt ónefndum ungum starfsmanni um að hafa lokað neyðarútgangi niður í kjallara byggingarinnar en við þær læstu dyr fannst Cyane illa haldin á meðan björgunaraðgerðum stóð og lést hún síðar úr reykeitrun.

Moretti-hjónin eru sökuð um manndráp sem og líkamsmeiðingar og íkveikju af gáleysi. Þau eru laus úr gæsluvarðhaldi en undir ströngu eftirliti svissneskra yfirvalda á meðan rannsókn málsins heldur áfram.

Óhætt er að fullyrða að þau hafi skapað sér litlar vinsældir vegna málsins en þau hafa einnig verið sökuð um að hafa reynt að eyða sönnunargögnum frá hinu afdrifaríka kvöldi og þá var Jacques sagður hafa fllúið brennandi skemmtistaðinn með úttroðinn peningakassa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“