fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Kona í Hafnarfirði krefst skilnaðar en eiginmaðurinn finnst ekki

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 25. janúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erlend kona sem býr í Hafnarfirði og er á fertugsaldri hefur stefnt eiginmanni sínum, sem einnig er á fertugsaldri, fyrir Héraðsdóm Reykjaness og krefst lögskilnaðar frá honum. Maðurinn er einnig erlendur.

Stefna málsins var birt í Lögbirtingablaðinu þann 15. janúar.

Málavextir eru þeir að fólkið kynntist í lok mars 2024. „Í upphafi sambands þeirra lék allt í lyndi en eftir að þau gengu í hjúskap í ágúst 2024 hóf stefndi að fjarlægjast stefnanda. Fljótlega læddist þá að stefnanda sá grunur að stefndi hefði einungis gifst henni fyrir hagkvæmni og að um væri að ræða málamyndahjónaband af hans hálfu. Aðilar ræddu skilnað fyrst í upphafi árs 2025 þar sem sundurlyndi hjónabandsins jókst sífellt. Aðilar eiga ekki saman börn og eiga engar sameiginlegar eignir. Stefnanda er kunnugt um að stefndi sé enn staddur á Íslandi en telur hann líkast til ekki með dvalarleyfi hérlendis,“ segir í stefnunni.

Þar kemur jafnframt fram að maðurinn hafi ekki mætt til sáttafunda hjá sýslumanni þrátt fyrir fögur fyrirheit þar um. Talið er að hann sé staddur á landinu en ekki er vitað um verustað hans og er honum því birt fyrirkall í Lögbirtingablaðinu, lögum samkvæmt.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness þann 18. febrúar næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”