fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Grútskítugir bílar í Reykjavík: „Þarf þetta að vera svona?“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 10:30

Skítugur bíll. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leiðarahöfundur Morgunblaðsins segir að nú sé runninn upp sá tími árs sem margir ökumenn hreinlega gefast upp á að halda bílum sínum hreinum.

Bíleigendur á höfuðborgarsvæðinu hafa vafalítið tekið eftir því síðustu vikur að lítið virðist þurfa til að gera bílana haugskítuga. Segir leiðarahöfundur Morgunblaðsins í dag að eitt af verkefnum borgarinnar sé að halda götunum hreinum en hún hafi algjörlega brugðist.

„Margra mánaða uppsöfnuð óhreinindi liggja á götunum og minnsta væta gerir að verkum að bílarnir ausa skítnum upp af malbikinu og yfir næstu bíla. Margir bílar eru orðnir svo skítugir að það er varla hægt að lesa á númeraplötur þeirra. Þeir eru þaktir drulluskán og mætti ætla að þeim væri aðallega ekið á malarvegum, ef ekki utan vega,” segir í leiðara blaðsins í dag.

Segir höfundur að þetta sjáist vel á björtum dögum þegar veður er stillt. Þá þyrli þungir bílar upp slíku rykskýi að varla sést til sólar. Á sama tíma séu borgarbúar varaðir við að vera á ferli utandyra nálægt helstu umferðaræðum.

„Lítið þýðir að þvo bílinn því hann verður jafnharðan grútskítugur aftur. En þarf þetta að vera svona,” spyr leiðarahöfundur.

Hann segir að undarlega lítill gaumur sé gefinn að því að halda götum borgarinnar hreinum. Víða í stórborgum erlendis séu götur hreinsaðar reglulega og í Berlín séu þær til dæmis hreinsaðar minnst mánaðarlega og oftar þar sem teljast vera borgarkjarnar.

„Hér er ekkert gert allan veturinn og svo fer hreinsunarátak af stað á vorin og stendur fram eftir sumri. Ætla mætti að það væri eitt af sjálfsögðum verkefnum borgaryfirvalda að halda götunum hreinum. Borgin er vissulega blönk og rekstur hennar undanfarin kjörtímabil hefur einkennst af óráðsíu og glundroða. Þetta hefur í allt of miklum mæli verið látið bitna á grunnþjónustu við borgarbúa og er til marks um einstakt metnaðarleysi,” segir leiðarahöfundur að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”