

Íslenska handboltalandsliðið minnti á köflum á óstöðvandi vél í fyrsta leik sínum á EM í Kristianstad í Noregi, er liðið vann stórsigur á Ítalíu, 39:26 eftir að staðan í hálfleik var 21:12.
Leikurinn var jafn á upphafsmínútum en síðan seig íslenska liðið fram úr og leit aldrei til baka.
Spekingar í EM-stofu RÚV voru sammála um að leikurinn lofi mjög góðu upp á framhaldið í keppninni.
Næsti leikur íslenska liðsins er gegn Póllandi á sunnudag.
Janus Daði Smárason var markhæstur með 8 mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 7.