Reuters skýrir frá þessu og hefur þetta eftir þremur heimildarmönnum innan veggja Kreml.
Pútín krefst þess að Úkraína láta Rússum Donbas-héraðið eftir, falli frá hugmyndum um að gerast aðili að NATÓ, verði áfram hlutlaust ríki og heimili ekki vestrænum hersveitum að koma til landsins.
Heimildarmenn Reuters segja að Pútín hafi slakað á kröfunum sem hann setti fram í júní 2024. Þá krafðist hann þess að Úkraína léti af hendi þau fjögur héruð sem Rússar gera kröfu til og segja hluta af Rússlandi. Þetta eru Donetsk og Luhansk í austurhluta Úkraínu og Kherson og Zaporizjzja í suðurhluta landsins. Úkraínumenn höfnuðu þessar kröfu nánast samstundis.
Í nýju kröfunum heldur Pútín fast í að Úkraína kalli hersveitir sínar frá þeim hlutum Donbas sem eru á valdi Úkraínumanna. Á móti muni Rússar draga landamæri við núverandi víglínur í Zaporizjzja og Kherson.
Pútín er einnig reiðubúinn til að láta smá hluta af Kharkiv-, Sumy- og Dnipropetrovsk-héruðunum af hendi.
Reuters reyndi að fá viðbrögð við þessum tillögum hjá úkraínska utanríkisráðuneytinu en það vildi ekki tjá sig að sinni.