fbpx
Þriðjudagur 15.júlí 2025
Fréttir

Rukkað fyrir bílastæði á að minnsta kosti 38 ferðamannastöðum – Sjáðu listann og verðin

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 14. júlí 2025 21:30

Bílastæði við Reynisfjöru. Skjáskot/Google Maps

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á undanförnum árum hefur það færst í aukana að landeigendur jarða þar sem eru vinsælir ferðamannastaðir rukki inn á bílastæði.

Flestir segjast landeigendurnir nota peningana sem safnast af þessu til þess að byggja upp innviði við ferðamannastaðina. Svo sem göngustíga, klósett og upplýsingaskilti.

Hins vegar eru ekki allir jafn sannfærðir um að peningarnir fari í uppbyggingu heldur að græðgi komi við sögu. Til að mynda hafa ítrekað birst sögur af ferðamönnum sem segjast ekki hafa vitað af gjaldheimtu en hafa svo fengið margfaldan bakreikning eftir að bílnúmerið náðist á öryggismyndavél.

Ljósmyndarinn Ísleifur Elí taldi taldi ferðamannastaðina þar sem rukkað er og birti yfirlit og verðskrá yfir þá á heimasíðu sinni. Eru þeir orðnir 38 talsins.

Hér má sjá listann, verðin og hvernig greitt er:

Seljalandsfoss – 900 krónur – Sölubás

Skógafoss – 1000 krónur – Parka app

Kvernufoss – 750 krónur – Parka app

Jökulsárlón – 1000 krónur – Parka app

Fjarðárgljúfur – 1000 krónur – Parka app

Múlagljúfur – 1000 krónur – Parka app

Skaftafell/Svartifoss – 1000 krónur – Parka app

Skíðaskálinn Hveradölum – 1000 krónur – Parka app

Hverir – 1200 krónur – Parka app

Hjörleifshöfði – 1000 krónur – Easy Park app

Reynisfjara – 1000 krónur – Parka app

Dyrhólaey – 750 krónur – Parka app

Brúarfoss – 750 krónur – Parka app

DC-3 flugvélaflakið – 1000 krónur – Parka app

Sólheimajökull – 750 krónur – Parka app

Gluggafoss – 1000 krónur – Parka app

Kerið – 600 krónur – Sölubás/Aðgangsfé

Stuðlagil – 1000 krónur – Parka app

Ytri-Tunga – 1000 krónur – Sölubás eða Checkit

Þingvellir – 1000 krónur – Parka app

Kirkjufell – 1000 krónur – Sölubás, Easy Park app eða QR kóði

Glanni – 1000 krónur – Parka app

Landmannalaugar – 1200 krónur – Pöntun

Illugastaðir – 1000 krónur – Parka app

Dynjandi – 750 krónur – QR kóði eða heimasíða

Stokksnes/Vestrahorn – 1100 krónur – Aðgangsfé

Geysir – 1000 krónur – Parka app

Flak við Sólheimasand – 750 krónur – Parka app

Hverfjall – 1000 krónur – Parka app

Rútshellir – 1000 krónur – Parka app

Reykjadalur – 200 krónur fyrsti klukkutími og 250 krónur tíminn eftir það – Easy Park app

Reykjanesviti – 1000 krónur – Parka app

Fjallsjökull – 1000 krónur – Parka app

Fagradalsfjall – 1000 krónur – Parka app

Malarrif – 750 krónur – Parka app

Urriðafoss – 750 krónur – Parka app

Sveinsstekkur – 1000 krónur – Parka app

Brúarhlöð – 1000 krónur – Parka app

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Valur vill gera 500 gjaldskyld bílastæði á fyrirhuguðu æfingasvæði

Valur vill gera 500 gjaldskyld bílastæði á fyrirhuguðu æfingasvæði
Fréttir
Í gær

Foreldrar hennar voru myrtir – Eftir ræðuna í jarðarför þeirra varð hún efst á lista yfir grunaða

Foreldrar hennar voru myrtir – Eftir ræðuna í jarðarför þeirra varð hún efst á lista yfir grunaða
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vill opna gistihylkjagistingu í Skipholti

Vill opna gistihylkjagistingu í Skipholti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Össur urðar yfir Morgunblaðið og Stefán Einar en er sáttur við ritstjórann – „Öfgafull málpípa raunverulegra eigenda“

Össur urðar yfir Morgunblaðið og Stefán Einar en er sáttur við ritstjórann – „Öfgafull málpípa raunverulegra eigenda“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilmundur glímdi við alvarlega heilsukvilla og breytti einu á heimilinu – „Ég varð strax léttari í líkamanum, bólgurnar minnkuðu, hreyfigetan óx, þreytan minnkaði“

Vilmundur glímdi við alvarlega heilsukvilla og breytti einu á heimilinu – „Ég varð strax léttari í líkamanum, bólgurnar minnkuðu, hreyfigetan óx, þreytan minnkaði“