fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Fréttir

Mygla setur stórt strik í reikninginn í skólastarfi á Þórshöfn – „Þetta er mikið áfall“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 4. júní 2025 16:00

Hluti Grunnskólans á Þórshöfn er ónothæfur vegna myglu. Mynd/Skjáskot-Já.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fram kemur í fundargerðum sveitarfélagsins Langanesbyggðar að mygla hafi greinst í húsnæði Grunnskólans á Þórshöfn. Ljóst er að töluverður hluti húsnæðisins verður ónothæfur á meðan unnið verður að viðgerðum. Skólastjórinn segir um mikið áfall að ræða.

Á síðasta fundi byggðaráðs, í liðinni viku, var greint frá því að staðfest hefði verið, með greiningu Náttúrufræðistofnunar á sýnum sem tekin voru, að mygla hefði fundist. Í fundargerð er vitnað í ýmis gögn sem þó eru ekki birt með fundargerðinni á heimasíðu sveitarfélagsins. Byggðaráð lagði til að rými til kennslu yrði fundin nýr staður til bráðabirgða og að gerð yrði fýsileikakönnun á þeim möguleikum sem kæmu til greina við endurbætur eða nýbyggingu skólans. Byggðaráð heimilaði forstöðumanni Þjónustumiðstöðvar að finna samstarfsfólk til að sinna verkefninu. Skólastjóra og sveitarstjóra var falið að finna hugmyndir sem hefðu komið upp í gegn um tíðina og skoða hvort hægt væri að nýta einhverja þeirra.

Á fundi velferðar- og fræðslunefndar sveitarfélagsins sem fram fór á mánudag hafði málið skýrst nokkuð og í fundargerð þess fundar er nánari grein gerð fyrir málinu. Hilma Steinarsdóttir skólastjóri var viðstödd fundinn og gaf nefndinni skýrslu um starfsemi skólans þar sem hún ræddi meðal annars mygluna.

Grunur

Segir í skýrslunni að í byrjun maí hafi komið upp grunur um myglu í kennslustofu 8. og 9. bekkjar sem heitir Eldjárnsstaðir. Stofunni hafi verið tafarlaust lokað. Í kjölfarið hafi verið tekin 19 sýni úr veggjum og gólfum úr rýmum sem öll séu í suðurálmu skólans. Þetta hafi verið bekkjarstofa 8. og 9. bekkjar, bekkjarstofa 10. bekkjar, skiptistofa, salerni og gangur. Niðurstöður hafi sýnt að mygla hafi greinst í 12 sýnum, öllum úr gólfum. Mygla hafi fundist í öllum prófuðum rýmum, sem þýði að allur austurhluti suðurálmu sé mengaður.

Segir enn fremur að miðað við fyrirliggjandi upplýsingar verði líklega að loka allri suðurálmunni og finna bráðabirgðahúsnæði fyrir næsta skólaár. Þetta hafi víðtæk áhrif þar sem í álmunni séu nú bekkjastofur 4.-10. bekkjar, tvö salerni, vinnuaðstaða kennara og kaffistofa. Hilma segir í skýrslunni:

„Þetta er mikið áfall en við munum einbeita okkur að lausnum til að tryggja óskert skólastarf þrátt fyrir þessar erfiðu aðstæður. Við munum geta notað önnur húsnæði í eigu Langanesbyggðar. Uppfæra þarf allar stundaskrár, sem annars voru tilbúnar fyrir næsta vetur, með það í huga að fækka ferðum á milli kennslurýma, bæði fyrir starfsfólk og nemendur. Starfsfólk nýtir starfdaga núna m.a. í að pakka niður á mið- og unglingastigi og í vinnurými kennara.“

Mikil mygla

Með fundargerðinni fylgir minnisblað frá fyrirtækinu Faglausn með tillögum að næstu skrefum. Í minnisblaðinu kemur meðal annars fram að niðurstaðan sé að mikil mygla hafi greinst í flestum þeirra sýna sem tekin voru úr gólfdúk í umræddum rýmum. Samkvæmt leiðbeiningum frá Náttúrufræðistofnun sé því ekki ráðlegt að kennsla eða önnur starfsemi verði í þeim rýmum sem sýkt eru. Í niðurstöðum Náttúrufræðistofnunar, sem fylgja einnig með fundargerðinni, kemur meðal annars fram að í flestum sýnanna þar sem mygla fannst hafi einnig fundist talsvert af leifum af smádýrum og „skítaspörðum.“ Í niðurstöðunum kemur einnig fram að af sumum sýnanna hafi stafað sterk fúkkalykt.

Í minnisblaðinu frá Faglausn er lagt til í hvaða aðgerðir eigi að ráðast næst. Lagt er til að sýkta svæðið verði afmarkað með þéttum plastveggjum. Lagt er til að gerð verði áætlun um hversu langt á að ganga í rifum og endurgerð. Faglausn mælir með því að í minnsta lagi verði sýkta svæðið tekið, veggir í því, gólf og loft. Í loftum þurfi að rífa burðarvið til að tryggja að viður sé ekki sýktur. Klæðningar innveggja þurfi að fjarlægja og grind að hluta til, einnig til að tryggja að ekki sé þar sýktur viður eða klæðningar. Meta þurfi með skólastjórnendum og sveitarstjórn hvort að lag sé að endurnýja álmuna í heild sinni. Gera þurfi síðan kostnaðaráætlun og svo loks bjóða verkið út.

Það á því eftir að koma í ljós hvað þetta á eftir að kosta sveitarfélagið.

Samkvæmt minnisblaðinu er talið raunhæft að gera ráð fyrir verktíma vegna endurbóta í janúar 2026 til ágúst 2026 og að framkvæmdum verði lokið fyrir skólaárið 2026 – 2027.

Segir að lokum í minnisblaðinu að ljóst sé að ekki verði hægt að hafa kennslu á sýkta svæðinu á næsta skólaári og því þurfi að finna tímbundna lausn á húsnæði fyrir þær kennslustofur og önnur rými sem eru á sýkta svæðinu en eins og áður segir hefur skólastjóri grunnskólans greint frá því að hægt verði að nýta annað húsnæði í eigu Langanesbyggðar.

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“
Fréttir
Í gær

Pútín og nánustu samstarfsmenn ósammála um Úkraínu

Pútín og nánustu samstarfsmenn ósammála um Úkraínu
Fréttir
Í gær

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu
Fréttir
Í gær

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk