fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Fréttir

Smyglaður sími afhjúpar ógnarstjórn Kim Jong Un

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. júní 2025 22:00

Kim Jong-un. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síma, sem var smyglað leynilega út úr Norður-Kóreu árið 2024,  hefur afhjúpað hrollvekjandi aðferðir stjórnvalda við að fylgjast með og kúga borgara sína. Á yfirborðinu lítur símann út fyrir að vera ósköp venjulegur snjallsími en sé skyggnst undir yfirborðið sést hvernig hann er hluti af víðtækri aðgerðaráætlun stjórnar einræðisherrans Kim Jong-Un um upplýsingastýringu og ritskoðun.

BBC greinir frá því að símarnir eru búnir sérstökum hugbúnaði sem tekur skjámyndir af notkun símans á fimm mínútna fresti – án þess að notandinn fái aðgang að þessum myndum. Þær eru vistaðar í falinni möppu sem eingöngu yfirvöld geta skoðað. Þessi aðgerð gerir sérstökum eftirlitssveitum kleift að hafa auga með því hvort einstaklingar séu að leita að ólöglegum upplýsingum eða gagnrýna ríkið.

Símarnir eru einnig forritaðir til að koma í veg fyrir notkun á vinsælum suður-kóreskum orðum. Til dæmis er orðinu „oppa“ (sem merkir „stóri bróðir“ en notað um kærasta) sjálfkrafa breytt í „félagi“, og fylgir viðvörun um að orðið megi einungis nota um systkini. Einnig er heiti Suður-Kóreu, „Nampan“, breytt í „lepparíki“, sem er orðalag norður-kóresku stjórnarinnar yfir nágranna sína.

Síminn, sem fjölmiðillinn Daily NK náði að smygla út úr landinu, sýnir hversu langt stjórnin gengur til að hindra aðgang fólks að upplýsingum og halda ímynd landsins ósnortinni. Að vanvirða leiðtoga ríkisins er talið alvarlegt brot, sem getur varðað fangelsisvist eða jafnvel dauðarefsingu.

Árið 2021 voru hundruð manna handtekin fyrir að nota kínverska farsíma, að sögn Daily NK. Margir þeirra voru sendir í fangabúðir þar sem þeir voru pyntaðir með raflosti, hengdir upp við loft og sættu kynferðisofbeldi. Sama ár skráðu suður-kóresk mannréttindasamtök tuttugu og þrjár opinberar aftökur í Norður-Kóreu. Vitni lýstu því að nemendur og verkamenn væru neyddir til að fylgjast með aftökunum sem viðvörun. Einn viðmælandi sagði: „Jafnvel þegar heilavökvi lak út úr höfði mannsins, var okkur skipað að horfa beint á lík hans.“

Af þessum aftökum tengdust að minnsta kosti sjö því að fólk horfði á eða dreifði suður-kóresku efni, eins og K-pop tónlist. Öll fjölmiðlun innan Norður-Kóreu er undir stjórn ríkisins og aðgangur að alþjóðlegu neti er bannaður. Þrátt fyrir það reyna samtök utan frá að brjótast í gegnum múrinn með því að senda upplýsingar yfir landamærin.

Á hverju kvöldi senda lítil samtök og útvarpsstöðvar upplýsingar á stuttbylgju og miðbylgju yfir til Norður-Kóreu. Einnig er USB-lyklum og SD-kortum smyglað yfir landamærin, með suður-kóresku tónlistarefni, kvikmyndum og jafnvel fræðsluefni um lýðræði. Markmiðið er að sýna Norður-Kóreubúum raunveruleikann utan einræðisríkisins og vekja með þeim von um frelsi.

„Flestir þeirra sem hafa flúið undanfarin ár segja að það hafi verið erlenda efnið sem hvatti þau til að taka áhættuna og flýja,“ sagði Sokeel Park hjá samtökunum Liberty in North Korea í samtali við BBC.

Til að sporna gegn þessu hefur Kim Jong-Un hert aðgerðir sínar. Í heimsfaraldrinum lét hann setja rafmagnsgirðingar við landamærin að Kína til að torvelda smygl. Árið 2020 voru refsingar við neyslu erlends efnis auknar og árið 2023 var jafnvel gert ólöglegt að nota suður-kóresk orð eða tala með suður-kóreskum hreim.

Þessar reglur voru samstundis felldar inn í hugbúnað tækja sem framleidd eru innan landsins, líkt og símans sem nú hefur verið afhjúpaður. Sérfræðingur í norður-kóreskri tækni, Martyn Williams, segir: „Snjallsímar eru nú hluti af því hvernig ríkið heilaþvær þegna sína.“  Telur hann að stjórnvöld í einræðisríkinu  séu að „ná yfirhöndina“ í upplýsingastríðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Jón Þór fær 6 ára fangelsi fyrir hrottafengna árás á fyrrum sambýliskonu sína

Jón Þór fær 6 ára fangelsi fyrir hrottafengna árás á fyrrum sambýliskonu sína
Fréttir
Í gær

Þorgerður Kristín nýr forstjóri ÁTVR

Þorgerður Kristín nýr forstjóri ÁTVR
Fréttir
Í gær

Svarar Dóru Björt fullum hálsi um málefni Grafarvogs – „Þetta er allt að því móðgun“

Svarar Dóru Björt fullum hálsi um málefni Grafarvogs – „Þetta er allt að því móðgun“
Fréttir
Í gær

Heiða opnaði sig um æskuna í ræðu á Alþingi – „Saga mín er birtingarmynd úrræðaleysis“

Heiða opnaði sig um æskuna í ræðu á Alþingi – „Saga mín er birtingarmynd úrræðaleysis“