fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 26. júní 2025 09:00

Kjartan Páll Sveinsson. Mynd: Skjáskot YouTube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kjartan Páll Sveinsson, formaður félags strandveiðimanna, ræðir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og togstreituna milli félaganna í viðtali í Sjókastinu.

„Ég svona batt ákveðnar vonir þegar Guðmundur Kristjánsson tók við formennsku í SFS, að að við gætum þá kannski slíðrað sverðin, vegna þess að við viljum ekkert hafa þetta svona. Við viljum ekki hafa þetta svona. Þetta er svolítið Davíð og Golíat. Við erum búin að vera í vörn eiginlega allan tímann og og og ég lít þannig á það að SFS hafi verið árásaraðilinn. Þannig að ég var svolítið vongóður um að kannski gætum við kannski farið að finna einhvern sameiginlegan grundvöll þarna og og þau myndu kannski sjá sinn hag í því að að nota okkur í bara auglýsingaherferð. Ég meina þau gera það náttúrlega hvort eð er í öllum auglýsingum. Þegar fiskur er seldur út í hinum stóra heimi er miklu meira sexí að vera með einyrkja með gogg heldur en einhver einhvern verksmiðjutogara. Fólk vill frekar sjá það og það selur.“

Kjartan Páll segir að síðan hafi komið í ljós að ekki virtist hljómgrunnur innan SFS með málflutning Guðmundar. Hann sagði sig frá formennsku SFS 16. júní síðastliðinn eftir rúmlega tveggja mánaða formennsku. Ástæðuna sagði Guðmundur vera: 

 „Ástæðan er sú að áherslur mínar í starfi samtakanna njóta ekki stuðnings framkvæmdastjóra né heldur félaga minna í forystu samtakanna. Þar af leiðandi tel ég best fyrir samtökin að ég segi mig úr forystu þeirra.“ 

Sjá einnig: Guðmundur segir sig frá formennsku SFS – Tæpir 3 mánuðir frá kjöri

Aðspurður um hvort hann hafi upplifað sanngirni í málflutningi Guðmundar svarar Kjartan Páll játandi:

„Já hann fattar þetta, hann skilur þetta. Hann veit alveg hvað klukkan slær, þannig hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu.“

Hlusta má á viðtalið við Kjartan Pál og önnur viðtöl Sjókastsins í heild sinni á YouTube og Spotify. 

Umræðan um Guðmund í Brim hefst á mínútu 0:47:07.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“