SORPA og Öryggismiðstöðin vinna nú að aukinni myndavélavöktun við grenndarstöðvar SORPU. Um síðustu áramót tók SORPA við hreinsun á grenndarstöðvum í Reykjavík og Kópavogi, sem starfsfólk sveitarfélaganna tveggja hefur hingað til sinnt. Í sveitarfélögunum tveimur eru samtals um 65 grenndarstöðvar, þar sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta losað sig við málmumbúðir, glerumbúðir, föt og klæði, og skilagjaldsskyldar umbúðir. Á völdum grenndarstöðvum er einnig í boði að losa pappír og plast.
Umgengni um grenndarstöðvar er ekki alltaf til fyrirmyndar, og þekkt vandamál að ýmiskonar rusl er skilið eftir við stöðvarnar í leyfisleysi. Í mörgum tilvikum er um að ræða rusl sem á sér ekki farveg á grenndarstöðvunum. Til að sporna við sóðaskap og auðvelda starfsfólki SORPU að tryggja góða umgengni á stöðvunum hefur SORPA hafist handa við að koma upp öryggismyndavélum á grenndarstöðvum í Reykjavík og Kópavogi. Stefnt er að því að myndavélar verði komnar upp á öllum grenndarstöðvum í sveitarfélögunum tveimur í lok þessa árs. Öryggismiðstöðin sér um uppsetningu á öryggismyndavélum sem og vöktun á grenndarstöðvunum. Kemur þetta fram í tilkynningu.
Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs SORPU, segir að þrifateymi SORPU og myndavélarnar frá Öryggismiðstöðinni hafi þegar sannað gagn sitt. Ábendingum um sóðaskap hefur fækkað snarlega eftir að SORPA tók við verkefninu, og með uppsetningu myndavélanna standa vonir til að áfram verði hægt að tryggja þennan árangur með lægri tilkostnaði.
„Myndavélarnar hafa greinilegan fælingarmátt. Fólk skilur rusl síður eftir á grenndarstöðvum sem eru vaktaðar en það gerði áður en við settum myndavélarnar upp. Myndavélarnar auðvelda okkar fólki líka vinnuna, því fram til þessa þurftum við að kanna hvort rusl hefði verið skilið eftir í óleyfi á grenndarstöðvum með því að mæta á staðinn. Núna getum við betur greint vandann og tekist á við hann með skilvirkari hætti,“ segir Gunnar Dofri.
,,Myndaeftirlitskerfi okkar veita öfluga yfirsýn um ástand grenndarstöðva SORPU og hafa mikinn fælingarmátt. Einnig auka þær öryggi starfsmanna og gesta við grenndarstöðvar SORPU. Með myndvöktun Öryggismiðstöðvarinnar er hægt að bregðast við í rauntíma. Myndavélakerfi er beintengt stjórnstöð okkar og getur gert viðvart um óæskilega umferð hvort sem er á nóttu eða degi,“ segir Auður Lilja Davíðsdóttir, framkvæmdastjóri Öryggislausna hjá Öryggismiðstöðinni.
„SORPA hefur náð góðum árangri í að vinna bug á sóðaskap við grenndarstöðvarnar okkar,“ segir Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg. „Það verður forvitnilegt að sjá hvaða áhrif myndavélarnar hafa á verkefnið þegar þær verða komnar upp á allar grenndarstöðvar.“