fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

Elín Hirst óttast um föður sinn – „Allt er þetta með ólíkindum“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. júní 2025 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Allt er þetta með ólík­ind­um,“ segir Elín Hirst, fjölmiðlakona og fyrrverandi þingkona, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Elín hefur farið fyrir hópi aðstandenda íbúa á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík sem lýsa áhyggjum sínum af fyrirhuguðum framkvæmdum vegna stækkunar heimilisins.

Faðir Elínar verður 91 árs á þessu ári og segir Elín í grein sinni að hann sé heilsulítill og lítið megi út af bregða í þeim efnum.

„Vafa­laust eru marg­ir íbú­ar heim­il­is­ins við verri heilsu en pabbi og enn viðkvæm­ari fyr­ir raski og hávaða en hann, svo ekki sé talað um skyndi­leg­ar breyt­ing­ar á um­hverfi og dag­legri rútínu,“ segir Elín.

Óttast mikla skerðingu á lífsgæðum

Elín bendir á að ákveðið hafi verið að stækka hjúkrunarheimilið að íbúum þess forspurðum. Fyrirhugaðar byggingaframkvæmdir eiga að standa yfir í rúm tvö ár og gera áætlanir ráð fyrir að byggð verði heil hæð ofan á húsið, tvær álmur lengdar og íbúðum fjölgað úr 92 í 150 til 160.

„Til stend­ur að íbú­ar hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins búi í hús­inu all­an tím­ann sem bygg­ing­ar­fram­kvæmd­irn­ar standa yfir. Það ligg­ur þó í hlut­ar­ins eðli að hávaði og rask sem hlýt­ur að fylgja slíkri fram­kvæmd mun valda mik­illi skerðingu á lífs­gæðum íbúa heim­il­is­ins og mun þessi nýi veru­leiki gnæfa yfir lífi þeirra,“ segir Elín.

Í grein sinni bendir hún á að Sóltún starfi eftir þjónustusamningi við ríkið sem gerður var árið 2000 í framhaldi af útboði ríkisins á rekstri hjúkrunarheimilis.

„Sól­tún (Öld­ung­ur hf.) varð hlut­skarp­ast í því útboði, en gekkst um leið und­ir skyld­ur bæði gagn­vart rík­inu og íbú­um um að veita hjúkr­un­arþjón­ustu af bestu gerð sem upp­fylli kröf­ur um gæði og virði mann­rétt­indi. Þessa þjón­ustu veit­ir Sól­tún í umboði rík­is­ins og þigg­ur háar upp­hæðir úr rík­is­sjóði fyr­ir hana. Íbúar sem eru af­lögu­fær­ir greiða einnig háar upp­hæðir fyr­ir dvöl á Sól­túni svo að lítið ráðstöf­un­ar­fé sit­ur eft­ir hjá íbú­um heim­il­is­ins í lok hvers mánaðar,“ segir Elín en í grein sem hún skrifaði í mars síðastliðnum kom fram að faðir hennar greiddi 530 þúsund krónur á mánuði fyrir dvöl og umönnun á Sóltúni.

Lítið um svör

Elín segir í grein sinni að hún hafi ásamt hópi aðstandenda lýst verulegum áhyggjum af fyrirætlunum um þessar tímafreku og hávaðasömu framkvæmdir.

„Til að glöggva okk­ur á því hvaða laga­skyld­ur Sól­tún og ríkið beri gagn­vart íbú­um heim­il­is­ins höf­um við gert til­raun til að afla upp­lýs­inga frá ýms­um op­in­ber­um stofn­un­um um þjón­ustu­samn­ing Sól­túns og rík­is­ins frá ár­inu 2000. Til stuðnings beiðni okk­ar um að fá að kynna okk­ur þenn­an 25 ára gamla þjón­ustu­samn­ing höf­um við vísað til ákvæða upp­lýs­ingalaga sem tryggja al­menn­ingi aðgang að gögn­um sem varða op­in­bera þjón­ustu sem þessa,“ segir Elín en til að gera langa sögu stutta hefur sú eftirgrennslan lítinn árangur borið enn sem komið er.

„Heil­brigðisráðuneytið hef­ur vísað á Sjúkra­trygg­ing­ar sem hafa enn ekki af­greitt beiðni okk­ar um að fá samn­ing­inn af­hent­an þótt tæp­ir þrír mánuðir séu liðnir frá því hún kom fram. Okk­ur hef­ur jafn­framt ekki tek­ist að ná fundi for­svars­manna Sjúkra­trygg­inga, þótt eft­ir því hafi verið leitað og ít­rekað. Þá hef­ur Sól­tún lagst gegn því að við fáum að kynna okk­ur þjón­ustu­samn­ing­inn á þeim for­send­um að hann inni­haldi viðskipta­leynd­ar­mál,“ segir hún.

Öll ljós slökkt hjá hinu opinbera

Elín segir að einnig hafi verið óskað eftir því við heil­brigðisráðuneytið að fá aðgang að rekstr­ar­leyfi Sól­túns, en aðstandendur fengið þau svör að leyfið finn­ist ekki í skjala­safni ráðuneyt­is­ins.

„Á heimasíðu Sól­túns er ekki held­ur hægt að nálg­ast upp­lýs­ing­ar um þjón­ustu­samn­ing­inn við ríkið sem fyr­ir­tækið á að starfa eft­ir, né er þar minnst á þau lög og regl­ur sem gilda um starf­semi hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins. Á vefsíðum hins op­in­bera eru upp­lýs­ing­ar um þessi mik­il­vægu atriði einnig af skorn­um skammti,“ segir Elín og bætir við að allt þetta sé með ólíkindum og ekki til þess að auka traust á stjórnsýslu í þeim mikilvæga málaflokki sem málefni aldraðra er.

„Þá vek­ur þessi staða áleitn­ar spurn­ing­ar um hver gæt­ir í raun og veru rétt­inda aldraðra sem dvelja á hjúkr­un­ar­heim­il­um, sem eru rek­in fyr­ir op­in­bert fé þótt einkaaðilar haldi utan um rekst­ur­inn í umboði rík­is­ins. Hjá hinu op­in­bera virðast þó öll ljós vera slökkt, á meðan einka­fyr­ir­tæk­inu er eft­ir­látið að hafa sína henti­semi um hvort það upp­fylli skyld­ur sín­ar gagn­vart íbú­um Sól­túns í sam­ræmi við gerða samn­inga og mann­rétt­indi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Arnar ómyrkur í máli: „Þetta fyrirkomulag er gargandi tímaskekkja“

Arnar ómyrkur í máli: „Þetta fyrirkomulag er gargandi tímaskekkja“
Fréttir
Í gær

Viðvörunarbjöllurnar hringja varðandi Rússland – „Þetta er óþægileg lesning“

Viðvörunarbjöllurnar hringja varðandi Rússland – „Þetta er óþægileg lesning“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Norðfjarðargöngum lokað vegna elds í bifreið

Norðfjarðargöngum lokað vegna elds í bifreið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rúmri einni milljón fátækari eftir að hafa slegið 74 ára mann með flötum lófa

Rúmri einni milljón fátækari eftir að hafa slegið 74 ára mann með flötum lófa