fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. júní 2025 20:00

Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjaness hefur hafnað bótakröfu ónefnds flugmanns á hendur ónefndu flugfélagi. Flugmanninum var sagt upp störfum eftir um 20 ára starf vegna ítrekaðra hegðunarvandamála í ferðum á vegum félagsins en hann hefur glímt við áfengisvandamál. Nýleg ADHD-greining lék stórt hlutverk í málarekstri flugmannsins og byggði hann ekki síst á henni við að færa rök fyrir því að uppsögnin hefði verið ólögleg. Dómurinn tók hins vegar ekki undir það og sagði allt of mikla galla á greiningunni.

Flugmaðurinn hóf störf hjá félaginu 2004 en var síðar hækkaður upp í tign flugstjóra. Honum var sagt upp störfum 2022 vegna hegðunarbrota. Honum hafði árið 2020 verið sagt upp störfum vegna hegðunarbrota í ferð á vegum félagsins. Sú uppsögn var síðan dregin til baka en þá með skilyrðum þar sem var vísað til fyrri hegðunarbrota flugmannsins og áminningar sem hann hlaut vegna þeirra árið 2009.

Hluti af skilyrðunum var að flugmaðurinn myndi fara í launalaust leyfi og leita sér aðstoðar vegna áfengisvanda síns. Kæmu hins vegar upp frekari atvik tengd áfengisvanda flugmannsins yrði honum aftur sagt upp.

Atlanta

Slíkt atvik kom upp árið 2022 á hóteli í Atlanta í Bandaríkjunum en þar var flugmaðurinn í vinnuferð á vegum flugfélagsins en nánari lýsingar á atvikinu hafa að mestu leyti verið afmáðar úr dómnum en þó tekið fram að hótelið hafi kvartað með formlegum hætti við flugfélagið yfir hegðun flugmannsins. Var flugmanninum í kjölfarið sagt upp.

Lögmaður hans gerði athugasemd við uppsögnina og vísaði til þess að flugmaðurinn hefði verið fyrr á árinu lokaður inn á hótelberbergi í Hong-Kong í viku vegna afar strangra Covid-19 reglna. Eftir þetta hafi hann glímt við mikla vanlíðan og í ferðinni í Atlanta leitað eftir aðstoð hjá trúnaðarmanni sem hafi kvatt hann til að tilkynna veikindi.

Starfsráð Félags íslenskra atvinnuflugmanna taldi að félaginu hefði verið heimilt að segja flugmanninum upp en trúnaðarlæknir félagsins tók ekki undir það og vísaði til skaðlegra áhrifa innilokunarinnar sem flugmaðurinn þurfti að sæta í Hong-Kong.

ADHD

Við árlega heilsufarsskoðun hjá fluglækni 2023 var flugmanninum síðan neitað um útgáfu heilbrigðisvottorðs á þeim forsendum að hann hefði nýlega verið greindur með ADHD og hafið lyfjatöku á lyfinu Elvanse Adult en lyfið er örvandi.

Í kjölfarið sneri lögmaður flugmannsins sér til flugfélagsins og vildi meina að uppsögnin hefði verið ólögmæt og rétt viðbrögð hefðu verið að senda flugmanninn í veikindaleyfi.

Vottorð frá geðlækni um að hann hefði greint flugmanninn með ADHD var gefið út um tveimur og hálfum mánuði eftir að heilsufarsskoðunin fór fram.

Málinu var í kjölfarið vísað til Samgöngustofu sem staðfesti synjun á útgáfu heilbrigðisvottorðsins. Sagði yfirlæknir stofnunarinnar að flugmaðurin hefði verið atvinnuflugmaður í yfir 20 ár án áfalla og að einkenni ADHD hafi verið væg og ekki hamlandi. Hins vegar væru lyfin sem notuð væru við ADHD örvandi og ekki leyfð í flugi. Sjúkdómsgreiningin ADHD samrýmdist ekki þeim kröfum sem gerðar væru til flugliða ef um hamlandi einkenni væri að ræða sem þyrftu meðferð og að flugmaðurinn uppfyllti ekki þeir kröfur sem gerðar væru til að hljóta vottorðið.

Varanlegt

Flugmaðurinn gerði ekki athugasemdir við niðurstöðu Samgöngustöfu. Hann fór í kjölfarið fram á bætur frá flugfélaginu vegna varanlegs missis flugmannsskírteinis. Nam krafan um 80 milljónum króna sem flugmaðurinn vildi fá greiddar úr skírteinistryggingu flugmanna hjá félaginu.

Tryggingafélag flugfélagsins krafðist afhendingu ýmissa gagna vegna kröfunnar og þegar ekki var orðið við því var kröfunni hafnað.

Krafan var ítrekuð í lok árs 2023 en flugfélagið hafnaði henni ekki síst á þeim grundvelli að ADHD-greiningin hefði ekki legið fyrir fyrr en eftir að flugmanninum hefði verið sagt upp störfum og ekkert ráðningarsamband hafi þá verið á milli aðila.

Benti flugfélagið einnig á að ADHD-greiningin væri vafasöm þar sem hún hefði legið fyrir tveimur mánuðum eftir útgáfu greinargerðar trúnaðarlæknis Félags íslenskra atvinnuflugmanna þar sem ekkert hafi verið minnst á hana. Þar að auki hefði flugmaðurinn hafið inntöku lyfsins átta dögum fyrir heilbrigðisskoðunina hjá fluglækninum sem hlyti að teljast vera einkennilegt og vottorð um greininguna hafi ekki verið gefið út fyrr en tveimur mánuðum eftir skoðunina.

Matið

Flugmaðurinn höfðaði loks mál á hendur flugfélaginu og krafðist áðurnefndrar upphæðar í bætur úr skírteinistryggingu flugmanna hjá félaginu. Héraðsdómur fékk geðlækni til að leggja mat á ADHD-greininguna.

Geðlæknirninn gerði ýmsar athugasemdir við greiningu kollega síns. Sagði geðlæknirinn meðal annars að greiningarferlið hafi mátt vera ítarlegra en það hafi samanstaðið af einu viðtali geðlæknis án aðkomu annarra fagstétta að greiningarvinnunni. Ráðlögð greiningartæki á borð við K-SADS eða DIVA hafi ekki verið lögð fyrir en flugmaðurinn hafi svarað sjálfsmatskvarða sem notaður sé til skimunar fyrir ADHD. Ekki hafi heldur verið tekin ítarleg þroskasaga og heilsufarssaga. Litlar upplýsingar liggi fyrir um mismunagreiningar ef frá sé talið kvíði og þunglyndi auk þess sem ekki liggi fyrir saga eða gögn frá aðstandendum um einkennamynd flugmannsins þegar hann var yngri. Sagði geðlæknirinn að einkennin þyrftu að vera komin fram fyrir 12 ára aldur og að koma þyrfti fram í greiningu á hvaða hátt einkennin væru hamlandi.

Enn í vinnu

Í niðurstöðu Héraðsdóm Reykjaness er ekki tekið undir með flugfélaginu um að ekkert ráðningarsamband hafi verið í gildi milli þess og flugmannsins þegar honum var neitað um heilbrigðisvottorðið. Uppsagnarfresturinn hafi ekki enn verið runninn út. Hann hafi því enn verið starfsmaður flugfélagsins.

Í niðurstöðunni er vísað til skýrslu læknisins, sem greindi flugmanninn með ADHD, fyrir dómi. Læknirinn hafi sagst hafa hitt flugmanninn eftir að móðir hans, sem er vinkona læknisins til áratuga, hafi hringt og óskað eftir tíma fyrir son sinn. Hann hefði hitt flugmanninn einu sinni og greint hann á staðnum með ADHD. Aðspurður um ástæður þess að flugmaðurnn fékk tíma með svo stuttum fyrirvara miðað við almennan biðtíma kvaðst hann almennt fljótur og afgreiða brýn erindi hratt. Læknirinn sagðist ósammála leiðbeiningum landlæknis um vinnulag við greiningu ADHD enda væri um að ræða klíníska greiningu sem hann væri fullfær um. Hann staðfesti einnig að hann hefði ekki lagt fyrir svokallað K-SADS og DIVA próf og ekki tekið sérstaka þroska- og heilsufarssögu. Hann hefði stuðst við sjálfsmatskvarða og treyst því að flugmaðurinn svaraði heiðarlega.

Samhljómur

Héraðsdómur segir í niðurstöðu sinni að reglur um flugskírteini útiloki raunar ekki að fólk með ADHD geti verið flugmenn.

Dómurinn segir athugasemdir geðlæknisins sem gagnrýndi greininguna samhljóða leiðbeiningum landlæknis um greiningar á ADHD. Þótt leiðbeiningarnar séu ekki bindandi sé óhætt að leggja til grundvallar að þær lýsi faglegum og viðurkenndum viðmiðum við greiningu á ADHD og hafa megi hliðsjón af þeim við úrlausn málsins en sérfræðingur í geðlækningum var meðdómsmaður í málinu.

Dómurinn segir ljóst að fyrir greininguna hafi á 18 ára ferli flugmannsins hjá flugfélaginu ekkert heilsufarlegs eðlis hamlað honum frá því að fljúga. Einkennin hafi samkvæmt lækni Samgöngustofu ekki verið hamlandi og flugmaðurinn og starfsmannastjóri flugfélagsins hafi verið einhuga um að ADHD hefði aldrei komið til umræðu fyrr en við umrædda heilsufarsskoðun, eftir uppsögnina. Flugmaðurinn hafi með skömmum fyrirvara, vegna vinatengsla móður sinnar, fengið tíma hjá lækninum sem greindi hann með ADHD en eins og rakið sé í mati kollega hans, sem sé samhljóða leiðbeiningum landlæknis, sé greiningin haldin verulegum annmörkum. Þar að auki hafi aðrir meðferðarmöguleikar en lyfjagjöf verið til staðar en ekki látið á þá reyna en hafa ber í huga að það var fyrst og fremst vegna lyfjatökunnar sem flugmaðurinn fékk ekki heilbrigðisvottorð.

Héraðsdómur segir það jafnframt ljóst að flugmaðurinn hafi átt verulegra fjárhagslegra hagsmuna að gæta af því að greinast með ADHD.

Í ljósi alls þessa er það niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness að flugmanninum hafi ekki tekist að sanna að ástandi hans hafi verið þannig háttað að réttur til greiðslu úr skírteinistryggingu hafi stofnast. Kröfu hans var því hafnað.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Lögreglan hér á landi í sambandi við frönsku lögregluna

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Lögreglan hér á landi í sambandi við frönsku lögregluna